Skoðun

Sjúkra­þjálfun eftir heims­far­aldur

Björn Hákon Sveinsson skrifar

Nú þegar sjúkraþjálfunarstofur hafa opnað aftur eftir rýmkun samkomubanns hafa biðlistar í sjúkraþjálfun almennt farið minnkandi. Það gerist þvert á spár sjúkraþjálfara. Þeir spáðu því að vegna mikillar kyrrsetu heimavinnandi fólks í misgóðum líkamsstöðum síðustu mánuði væri fólk upp til hópa annað hvort hangandi á húninum hjá sjúkraþjálfurum eða rétt ókomið þangað vegna verkja. Sú spá hefur ekki enn ræst og vonandi mun hún ekki rætast.

Innskot: Það er fullkomlega eðlilegt að vera stíf/ur, stirð/ur og jafnvel þjáð/ur eftir langar kyrrsetur. Sama hvernig þú sast. Það er ólíklega vegna undirliggjandi kvilla og engin ástæða til að hræðast. Líklegra er að þú sért að fá skilaboð um að nú sé kominn tími til að sitja minna og hreyfa sig aðeins.

Fólk sem gat unnið fulla vinnu heimavið í samkomubanninu fann mögulega fyrir meira álagi vegna minni viðveru barna í skóla og leikskóla og erfiðleika við að sinna fjölskyldunni og skila fullri vinnu. Hins vegar nýtti fjöldi fólks tækifærið í minnkuðu starfshlutfalli til aukinnar útiveru, hreyfingar og samveru með fjölskyldu. Til marks um þetta hafa aldrei mælst fleiri gangandi og hjólandi vegfarendur á höfuðborgarsvæðinu en í apríl 2020 og það án allra ferðamanna. Það magnaða við hreyfingu er að hún virkar á margan hátt eins og verkjalyf. Nú er mælt í auknum mæli með göngu fyrir fólk sem glímir við langvarandi sársauka. Streita, sem eykur á sársaukaskynjun fólks, virðist einnig gefa eftir við aukna útiveru og hreyfingu.

Úr Laugardal í Reykjavík.Vísir/Vilhelm

Margar ástæður geta legið að baki dvínandi ásókn í sjúkraþjálfun núna stuttu eftir rýmkun samkomubanns. Ein þeirra gæti þó verið að fólk hafi stundað meiri útiveru og hreyfingu, unnið minna og upplifi því minni streitu, minni sársauka og almennt betri heilsu og líðan.

Það er erfitt að vinna starf þar sem þín helsta ósk er að enginn þurfi á aðstoð þinnar stéttar að halda. Það verður kannski seint raunin en ég hvet ykkur sem hafið fundið vellíðan, aukið heilbrigði og gleði við útiveruna í mars og apríl að halda henni áfram og halda biðlistum í sjúkraþjálfun og álagi á heilbrigðiskerfið í lágmarki. Finnum leiðir til að ganga, hjóla eða taka strætó í vinnuna. Finnum leiðir til að minnka við okkur vinnu ef við getum og auka samveru og útiveru á daginn. Finnum leiðir til að láta okkur líða vel.

Sjáumst sem flest í sumar á gangstéttum, hjólastígum, almenningsgörðum, reiðstígum, fjallstígum, g(f)olfvöllum og hvar sem við finnum hreyfingu og útiveru okkar farveg.

Höfundur er sjúkraþjálfari.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×