Skoðun

Myglu­skáli Rb við Ný­sköpunar­mið­stöð Ís­lands

Kristmann Magnússon og Björn Hjartarson skrifa

Tilkynningum og fréttum vegna myglu í íslensku húsnæði hefur fjölgað mikið á síðustu árum enda samfélagið orðið mun meðvitaðra um vandamálið. Á málþingum sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur staðið fyrir hefur m.a. komið fram að samfélagslegur kostnaður vegna myglunnar sé farinn að hlaupa á milljörðum og gæti verið af stærðargráðunni tíu milljarðar á ári. Hér er því á ferðinni vandamál sem farið er að valda samfélagslegum skaða og mætti jafnvel flokka sem samfélagslegan bagga.

Nýsköpunarmiðstöð hefur staðið fyrir málþingum um áhrif rakaskemmda þar sem læknar, fræðimenn og verkfræðingar voru með erindi um myglu og afleiðingar hennar. Ef minnka má fjárhagslegt tjón af áhrifum rakaskemmda og myglu um t.d. fimmtíu prósent þ.e. frá tíu milljörðum niður í fimm milljarða á ári, með vissu átaki og rannsóknum í málaflokknum þá myndu niðurstöður verkefnisins skila vel mælanlegum fjárhagslegum árangri með miklum þjóðhagslegum sparnaði samfélaginu í hag.

Mygluskálinn.Nýsköpunarmiðstöð

Rannsóknir í Mygluskála

Fjölmargar rannsóknir hafa nú verið framkvæmdar í Mygluskála Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands en um 300 sýni voru rannsökuð og greind á árinu. Þetta er fyrsti opinberi mygluskáli landsins en til stendur að nota hann í a.m.k. nokkur ár til þess að rannsaka áhrif myglu á byggingarefni sem notað er á Íslandi. Húsnæði Mygluskála Rb var upprunalega reist sem tilraunahús árið 1991 með það að markmiði að álagsprófa mismunandi gerðir af gluggum við raunaðstæður til lengri tíma undir stjórn Jóns Sigurjónssonar, þáverandi yfirverkfræðings Rb. Eftir að því verkefni lauk og rannsóknir á endingu glugga á Íslandi færðust alfarið yfir í nýjan slagregnsprófunarskáp Rb var skálinn ónotaður en hefur nú tekið við nýju hlutverki.

Úr Mygluskálanum

Sýni úr sýktum byggingum og áhrif raka á endingu byggingarefna

Mygluskálinn er málmklæddur að innan og er svæðisskiptur niður í tvö aðskilin vinnusvæði. Á fremra svæðinu eru ný sýni tekin inn og þau undirbúin undir frekar rannsóknir á innra svæði Mygluskálans. Á innra svæðinu eru sýnin geymd í lokuðum glerbúrum við mismunandi rakastig og þróun mygluvaxtar í sýnunum svo skoðuð sem fall af tíma til að meta næmi byggingarefna við íslenskar aðstæður. Innst í Mygluskálanum er aðstaða fyrir sveppasérfræðing til að greina myglutegundir og áætla umfang mygluvaxtar í sýnunum með smásjá og víðsjá og eru allar greiningar myndaðar jafnóðum.

Rannsóknir á áhrifum myglu

Fyrsti hluti rannsóknarinnar fól í sér að taka fjölmörg sýni af nýjum krossvið, spónaplötum, gipsplötum og ýmsum öðrum byggingarefnum. Sýnin eru síðan sett í mismunandi rakastig og geymd þar í nokkra mánuði og mygluvöxtur á yfirborði þeirra rannsakaður og skráður niður af sveppasérfræðingi með reglubundnu millibili. Flest sýnin mygla fyrr eða síðar, en rakastigið hefur mikil áhrif á hvenær mygluvöxtur hefst og þá dafnar í framhaldinu. Rannsóknirnar hafa hingað til leitt í ljós að við verstu aðstæður geta fjölmargar ólíkar tegundir myglu þrifist í hverju sýni. Þessi hluti verkefnisins er sá fyrsti af mörgum en ljóst er að hér er um að ræða margra ára tilraun þar sem taka þarf fleiri sýnir til að fá nákvæmari niðurstöður.

Höfundar eru starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Þessi grein er hluti af ritröðinni Nýsköpun og rannsóknir sem varpar ljósi á fjölbreyttar vísindarannsóknir og nýsköpunarstarf sem unnið er að hérlendis. Greinarnar eru skrifaðar af starfsmönnum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og eru úr ársskýrslu miðstöðvarinnar. Nánari upplýsingar um Nýsköpunarmiðstöð Íslands eru á www.nmi.is.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×