Fótbolti

Minnst þrír leikmenn í spænsku úrvalsdeildinni með kórónaveiruna

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Renan Lodi í baráttu við Mohamed Salah þann 11.mars síðastliðinn.
Renan Lodi í baráttu við Mohamed Salah þann 11.mars síðastliðinn. vísir/getty

Alls hafa þrír leikmenn úr spænsku úrvalsdeildinni greinst með kórónaveiruna en öll lið deildarinnar gengust undir skimun fyrir veirunni í aðdraganda þess að æfingar hófust fyrr í vikunni.

Brasilíski varnarmaðurinn Renan Lodi (Atletico Madrid), spænski markvörðurinn Alex Remiro (Real Sociedad) og venesúelski miðjumaðurinn Yangel Herrera (Granada) eru með veiruna en ekki liggja enn fyrir niðurstöður fyrir alla leikmenn deildarinnar.

Topplið deildarinnar, Barcelona, hóf æfingar um miðja viku og samkvæmt heimildum spænskra fjölmiðla reyndust niðurstöður skimunar hjá Börsungum allar neikvæðar. Einhver lið munu hefja æfingar á mánudag, þar á meðal Real Madrid.

Forráðamenn spænsku úrvalsdeildarinnar hafa gefið út að stefnt sé að því að hefja leik að nýju um miðjan júní en engin dagsetning hefur verið gefin út.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×