Besta byrjun Los Angeles Lakers liðsins í 34 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2019 17:00 LeBron James í leiknum í nótt. Getty/ Don Juan Moore
LeBron James var ekki búinn að halda upp á eins árs afmælið sitt þegar þegar Los Angeles Lakers byrjaði síðast jafnvel og á þessu tímabili. Los Angeles Lakers liðið vann 96-87 sigur á Orlando Magic í NBA deildinni í nótt og hefur unnið 22 af 25 leikjum sínum á tímabilinu. Þetta er besta byrjun Lakers liðs á tímabilið síðan 1985 til 1986 þegar Magic Johnson, Kareem Abdul-Jabbar og James Worthy voru í stjörnuhlutverkum í liðinu. Pétur Guðmundsson kom inn í Lakers liðið seinna á því tímabili og var með 7,3 stig að meðaltali á 16,0 mínútum í átta deildarleikjum. Nú snýst allt um þá LeBron James og Anthony Davis sem er á sínu fyrsta tímabili með Lakers. LeBron James kom í heiminn 30. desember 1984 en Lakers vann 22. leikinn sinn á 1985-86 tímabilinu 18. desember 1985. Kareem Abdul-Jabbar var þá með 31 stig, James Worthy skoraði 22 stig og Magic Johnson bætti við 12 stigum og 8 stoðsendingum. The Lakers are off to their best start in 34 years. https://t.co/vcQVIU4Zu1— USA TODAY Sports (@usatodaysports) December 12, 2019 LeBron James var með sjöttu þrennuna sína á tímabilinu á móti Orlando Magic (25 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar) og Anthony Davis bætti við 16 stigum og 12 fráköstum. James er með 25,9 stig og 10,8 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur og er efstur í deildinni í stoðsendingum. Los Angeles Lakers og Milwaukee Bucks eru með besta árangurinn í NBA-deildinni en Bucks liðið hefur unnið sextán leiki í röð. Lakers tapaði fyrsta leik tímabilsins á móti nágrönnunum í Los Angeles Clippers en hefur síðan unnið 22 af 24 leikjum sínum eða alla leiki nema leikina á móti Toronto Raptors 10. nóvember og Dallas Mavericks 1. desember. Liðið vann fimmta leikinn í röð í nótt. Lakers er á ferðinni um Austurströndina og næstu fjórir leikir eru einnig á útivelli. Liðið mætir Miami Heat, Atlanta Hawks og Indiana Pacers áður en kemur að leik á móti Milwaukee Bucks 19. desember. Los Angeles Lakers verður hins vegar heima yfir nær öll jólin því frá 20. desember til 9. janúar spilar liðið aðeins einn útileik og sá verður í Portland 28. desember.
NBA Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira