Stóri Duncan stýrði Everton til sigurs gegn Chelsea Anton Ingi Leifsson skrifar 7. desember 2019 14:15 Duncan var líflegur á hliðarlínunni í dag. vísir/getty Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Everton sem vann 3-1 sigur á Chelsea í fyrsta leik Duncan Ferguson við stjórnvölinn hjá þeim bláklæddu úr Bítlaborginni. Marco Silva var rekinn úr stjórastólnum hjá Everton á fimmtudagskvöldið en Duncan Ferguson, goðsögn hjá Everton og fyrrum aðstoðarmaður Silva, stýrði liðinu í dag.| Here. Ready for business. #EVECHE COME ON! pic.twitter.com/umRZmhHvCv— Everton (@Everton) December 7, 2019 Það var rosalegur kraftur í liði Everton í dag og það skilaði árangri strax eftir fimm mínútur er Richarlison skoraði eftir frábæra fyrirgjöf Djibril Sidibe. Everton varði forystuna í fyrri hálfleik en Chelsea-menn voru meira með boltann. Þó áttu heimamenn í Everton nokkur álitleg upphlaup en staðan 1-0 í hálfleik.Everton made 17 tackles in the first half against Chelsea, more than they made in any first half of a PL game under Marco Silva, Sam Allardyce or Ronald Koeman. The Big Dunc effect. ™ pic.twitter.com/Qv6k4QNloX— Squawka Football (@Squawka) December 7, 2019 Þegar fjórar mínútur voru liðnar af síðari hálfleik tvöfaldaði Dominic Calvert-Lewin forystuna. Eftir darraðadans í kringum vítateig Chelsea datt boltinn fyrir Englendinginn sem kláraði færið vel. Einungis þremur mínútum síðar minnkaði Chelsea muninn. Mateo Kovacic skoraði þá með laglegu skoti fyrir utan vítateig og aftur komin mikil spenna í leikinn. Leikmenn Chelsea reyndu hvað þeir gátu til þess að jafna metin en Dominic Calvert-Lewin gerði út um leikinn á 84. mínútu með öðru marki sínu og þriðja marki Everton. Lokatölur 3-1.2019 - Year of the ball boy.#EFC#bbcfootballpic.twitter.com/JpDn3W0FX8— Match of the Day (@BBCMOTD) December 7, 2019 Everton fer upp í 14. sætið með sigrinum en liðið er með 17 stig. Chelsea er í 4. sætinu með 29 stig. Enski boltinn
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti