FH-ingar hafa ekki tapað á Hlíðarenda í 37 mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. desember 2019 15:30 Það hefur verið hart tekist á í leikjum Vals og FH og hér hefur Valsmaðurinn Róbert Aron Hostert fengið að finna fyrir því. Vísir/Vilhelm
FH-ingar kunna greinilega vel við sig á Hlíðarenda þar sem þeir verða í eldlínunni í kvöld þegar Valsmenn taka á móti FH í lokaleik þrettándu umferðar Olís deildar karla í handbolta. Stöð 2 Sport sýnir leik Vals og FH beint en bæði lið eiga möguleika á því að hoppa upp í þriðja sætið í töflunni. FH er í 4. sæti, einu stigi á eftir Selfossi (3. sæti) en Valur er í 6. sæti, tveimur stigum á eftir Selfossi. FH vann þriggja marka sigur á Val, 26-23, í fyrri leiknum í Kaplakrika sem fór fram um miðjan september.Valsmenn voru þá í vandræðum en hafa síðan komist á flug og unnu sinn sjötta leik í röð í síðustu umferð. FH vann aftur á móti sannfærandi sigur á heimavelli Íslandsmeistara Selfoss í síðasta leik sínum. FH-ingar hafa ekki tapað í síðustu fimm heimsóknum sínum á Hlíðarenda en síðasti leikur liðanna í Origo höllinni endaði með 28-28 jafntefli í fyrra. Þar á undan höfðu FH-ingar unnið fjóra leiki í röð í Valsheimilinu. Valur hefur ekki unnið heimaleik á móti FH síðan 10. nóvember 2016 eða í rétt tæpa 37 mánuði. Valur vann þá 30-29 sigur í hörku leik þar sem Vignir Stefánsson skoraði sigurmarkið og Hlynur Morthens varði lokaskot FH-inga. Á þeim þremur árum sem eru liðin síðan þá eru FH-ingar taplausir og 23 mörk í plús í fimm leikjum sínum á Hlíðarenda. Nú reynir á það í kvöld hvort FH-ingar kunnu ennþá svona vel á Valsmenn á þeirra eigin heimavelli. Leikurinn hefst klukkan 19.30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.Síðustu leikir Vals og FH á Hlíðarenda á Íslandsmótinu í handbolta: 19. nóvember 2018 - Jafntefli (28-28) 22. október 2017 - FH sigur (33-21) 18. maí 2017 - FH sigur (30-25) 13. maí 2017 - FH sigur (28-25) 2. mars 2017 - FH sigur (26-23) 10. nóvember 2016 - Valssigur (30-29)
Olís-deild karla Mest lesið Hætti við að hætta og samdi við Barcelona Fótbolti Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Fótbolti Salah setti met í sigri Liverpool Fótbolti „Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“ Körfubolti Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Handbolti Óvænt tap meistaranna og fimm marka fjör hjá Juventus Fótbolti Ofurvaramaðurinn með ótrúlegt mark til að tryggja Aston Villa sigur Fótbolti Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Þúsund Walesverjar í Dalnum og Åge kallar eftir hjálp Fótbolti Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Fótbolti Fleiri fréttir Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Magdeburg í úrslit fjórða árið í röð Bjarki Már í úrslit á kostnað Barcelona Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Lilja tognuð á ökkla og frá næsta mánuðinn Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Greið leið fyrir Bjarka, Ómar og Gísla í undanúrslit HM Elliði Snær frábær í sigri Gummersbach Bjarki með átta gegn Brössum Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Þorsteinn Leó fór hamförum „Varnarleikurinn var skelfilegur” FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Tíu marka sigur Íslands Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad Sjá meira