Southampton hafði betur í botnbaráttunni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 30. nóvember 2019 19:30 Loks geta leikmenn Southampton fagnað heimasigri vísir/getty Southampton vann fyrsta heimaleikinn sinn í ensku úrvalsdeildinni síðan 13. apríl þegar Watford mætti í heimsókn. Þetta var sannkallaður botnslagur, en fyrir leikinn voru liðin í neðstu sætunum tveimur í deildinni. Watford komst yfir á 24. mínútu þegar Ismaila Sarr skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark. Heimamenn náðu ekki að jafna metin fyrr en á 77. mínútu og var það Danny Ings sem skoraði fyrir Southampton. Sigurmarkið kom aðeins fimm mínútum seinna með góðu marki James Ward-Prowse, leiknum lauk með 2-1 sigri Southampton. Southampton er nú tveimur stigum frá öruggu sæti en Watford situr sem fastast á botninum með átta stig, sex stigum frá því að komast upp úr fallsætinu. Enski boltinn
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti