Lífið

Oli­ver Luckett selur hið sögu­fræga Kjarvals­hús á Sel­tjarnar­nesi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Stofan státar af fimm metra lofthæð. Hér er eflaust ágætt að mála listaverk.
Stofan státar af fimm metra lofthæð. Hér er eflaust ágætt að mála listaverk. Mynd/Fasteignaljósmyndun
Bandaríski samfélagsmiðlafrömuðurinn og milljónamæringurinn Oliver Luckett hefur sett hús sitt á Seltjarnarnesi á sölu. Húsið er sögufrægt, kennt við listmálarann Jóhannes Kjarval, og eitt það glæsilegasta á landinu.

Sjá einnig: Lohan er komin

Luckett, sem er stórtækur listaverkasafnari, festi kaup á húsinu árið 2016. Það stendur við Sæbraut 1 á Seltjarnarnesi og státar af „stórbrotnu útsýni“, líkt og það er orðað í fasteignaauglýsingunni sem finna má hér.

Húsið er rúmir 440 fermetrar á tveimur hæðum og stendur á 880 fermetra lóð. Í því er að finna fimm svefnherbergi, þrjú baðherbergi, rúmgóðar suðursvalir og þvottahús. Óskað er eftir tilboði í húsið en fasteignamat þess er 178,5 milljónir króna. Myndir innan úr húsinu má sjá neðst í fréttinni.

Oliver Luckett ásamt Heiðu Kristínu Helgadóttur.Vísir/Valli
Þorvaldur S. Þorvaldsson arkítekt teiknaði húsið, sem byggt er árið 1969, með sérþarfir áðurnefnds Kjarvals í huga. Þannig var stofan til að mynda ætluð sem vinnustofa listmálarans, enda heppileg til listsköpunar með fimm metra lofthæð og stórum gluggum.

Kjarval fékk húsið að gjöf frá íslensku þjóðinni fyrir ævistarf sitt og framlag til menningararfs Íslendinga. Þegar húsið var til­búið hugnaðist hon­um þó ekki að flytja inn í það.

Það gerðu hins vegar Oliver Luckett og eiginmaður hans, Scott Guinn, og settu svo sannarlega mark sitt á Kjarvalshús. Á myndum innan úr húsinu má sjá fjölda listaverka sem þeir hafa sankað að sér, mörg eftir íslenska listamenn.

Húsið stendur við sjávarsíðuna á Seltjarnarnesi.Mynd/Fasteignaljósmyndun
Luckett og Guinn hafa verið tíðir gestir á Íslandi undanfarin ár og líta á landið sem sitt annað heimili. Þannig vakti brúðkaup þeirra sem haldið var hér á landi árið 2017 mikla athygli. Þá flykktist hingað málsmetandi fólk úr samkvæmislífinu vestanhafs, til dæmis bandaríska leikkonan Lindsay Lohan.

Sjá einnig: 
Sjáðu myndirnar úr brúðkaupi Luckett og Guinn: Lohan og gestir skemmtu sér í sveitinni

Þá mætti skemmti- og listaelítan nánast eins og hún lagði sig þegar Luckett hélt upp á fertugsafmæli sitt í Gamla bíói árið 2014. Luckett er vel fjáður en hann seldi fyrir ekki svo löngu fyrirtæki sitt theAudience fyrir stórfé til fjárfesta frá Dubai. Luckett er frumkvöðull og samfélagsmiðlasérfræðingur og hefur meðal annars annast málefni frægs fólks á internetinu.

Í fyrra var svo greint frá því að Luckett hefði snúið sér að sölu á rekjanlegum fiski en hann kom að stofnun fyrirtækisins Niceland Seafood ásamt Heiðu Kristínu Helgadóttur.

Fallegt eldhús. Bjart. Blátt.Mynd/Fasteignaljósmyndun
Hugguleg setustofa.Mynd/Fasteignaljósmyndun
Þrjú svefnherbergi eru í húsinu. Hér er eitt þeirra.Mynd/Fasteignaljósmyndun
Borðstofan er heilir 110 fermetrar.Mynd/Fasteignaljósmyndun
Og útsýnið er ekki af verri endanum, líkt og sjá má á þessari mynd.Vísir/Fasteignaljósmyndun

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.