Kim sagður vilja funda aftur með Trump Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 4. nóvember 2019 19:00
Svo virðist sem einræðisherra Norður-Kóreu vilji funda með Donald Trump Bandaríkjaforseta í desember. Þetta sagði starfsfólk leyniþjónustu Suður-Kóreu við þarlenda þingnefnd í dag. Kim Jong-un hefur tvívegis fundað með Trump Bandaríkjaforseta. Fyrst í Singapúr á síðasta ári og svo í Víetnam í febrúar. Að auki hafa sendinefndir ríkjanna tveggja oftsinnis hist. Umræðuefnið er kjarnorkuafvopnun Kóreuskagans. Krafa Bandaríkjanna er í grunninn sú að ríkið eyði kjarnorkusvæðum sínum áður en slakað er á viðskiptaþvingunum en Kim-stjórnin hefur fyrst viljað afléttingu þvingana. Nokkuð frost hefur verið í viðræðum ríkjanna frá því fundinum í Víetnam lauk án gerðar nokkurs samkomulags. Erindrekar mættu síðast til viðræðna í Svíþjóð í upphafi síðasta mánaðar. Árangur þeirra viðræðna var enginn. Suðurkóreski miðillinn Yonhap greindi svo frá því í dag að leyniþjónusta Suður-Kóreu hafi tjáð þingnefnd að Kim vildi gjarnan eiga þriðja fundinn með Trump í næsta mánuði. Norður-Kórea hafi sett sér markmið um að viðræðum skuli vera lokið fyrir áramót og samningur í höfn.
Bandaríkin Donald Trump Norður-Kórea Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Erlent Lægð stjórnar veðrinu um helgina Veður Fleiri fréttir Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Sjá meira