Skoðun

Sjálfri sér verst

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Hér skal ósagt látið hversu oft þau hafa heyrst orðin sem Bogi Ágústsson lét nýverið falla í fréttatíma RÚV: „Mikil óvissa ríkir nú um hvað tekur við í breskum stjórnmálum.“ Víst er að þau hafa heyrst ótal sinnum frá því úrslit í hinni ógæfulegu þjóðar­atkvæðagreiðslu um Brexit voru ljós.

Það er þungbært að horfa á þjóð kalla sjálfviljuga yfir sig glundroða og upplausn og standa síðan eftir ringluð og ráðvillt. Einmitt þannig er komið fyrir bresku þjóðinni. Misvitrir stjórnmálamenn teymdu hana út í þjóðaratkvæðagreiðslu um veru í Evrópusambandinu. Í kosningabaráttunni var hver lygin á fætur annarri borin á borð fyrir kjósendur. Þeir sem lugu mest og höfðu hæst áttu ekki von á að úrslit kosninganna yrðu á þann veg að Bretar höfnuðu Evrópusambandinu. Það gerðu þeir og stór hluti þeirra er nú gripinn aðskilnaðarkvíða, og það ekki að ástæðulausu.

Í rúm þrjú ár hefur atburðarásin í Brexit verið eins og í kvikmyndinni Groundhog Day, hver dagur er nánast eins. Það eina sem hefur breyst er að breska þjóðin gerir sér æ betri grein fyrir því að stjórnmálamenn hennar eru duglitlir og ráðalausir. Forsætisráðherrann Boris Johnson er reyndar alltaf jafn borubrattur þrátt fyrir að hann hljóti að vita innst inni að það er þjóðinni ekki fyrir bestu að standa utan Evrópusambandsins. Egóið rekur hann áfram. Hann er óneitanlega meiri karakter en forveri hans, hin sviplitla Theresa May, og töffaraleg orð hans um að hann vilji frekar liggja dauður ofan í skurði en sækja um útgöngufrest til Evrópusambandsins eru orðin fleyg. Kannski eru þau það eina eftirminnilega sem breskur stjórnmálamaður hefur sagt um málið í öll þessi ár. Ekki hefur leiðtogi Verkamannaflokksins, Jeremy Corbyn, haft mikið fram að færa, enda gamaldags sósíalisti sem sér enga ástæðu til að berjast í þágu Evrópuhugsjónarinnar. Ólán Breta er mikið og margvíslegt og hluti af því er að Verkamannaflokkurinn skuli ekki eiga formann sem dugar.

Brexit-þreytu gætir í breskum fjölmiðlum og það svo mjög að Sky sjónvarpsstöðin er farin að auglýsa hvar áhorfendur geti horft á Brexit-lausar fréttir stöðvarinnar. Fréttamenn eru orðnir leiðir á að segja frá sömu tuggum stjórnmálamannanna dag eftir dag, viku eftir viku og ár eftir ár. Þeir gera sér grein fyrir því að almenningur er orðinn enn þreyttari en þeir. Engin furða miðað við að sama atburðarás hefur verið í gangi í nokkur ár með engri niðurstöðu annarri en þeirri að málinu er frestað.

Auðvitað átti Brexit aldrei að fara í þjóðar­atkvæðagreiðslu. Forsætisráðherrann sem ýtti málinu úr vör, David Cameron, er dæmi um stjórnmálamann sem brást þegar þörf var á því að hann stæði í lappirnar. Vanhæfni hans varð til þess að í dag er breska þjóðin klofin og í sárum. Í aðdraganda kosninga var hún blekkt og að henni logið. Æ fleiri átta sig á því, en of seint. Breska þjóðin var sjálfri sér verst og þarf nú að takast á við afleiðingarnar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×