Lífið

Egglaga ský vöktu athygli í höfuðborginni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skýið er egglaga og vakti athygli Siggu Maiju og vafalítið fleiri í morgun.
Skýið er egglaga og vakti athygli Siggu Maiju og vafalítið fleiri í morgun. Sigga Maija
„Egg eða geimverur?“ spyr Sigríður María Sigurjónsdóttir, betur þekkt sem Sigga Maija, sem tók athyglisverða mynd á Hverfisgötunni í morgun. 





Sigga Maija, sem er rekstrarstjóri hjá Bíó Paradís á Hverfisgötunni, birti myndina á Facebook og hefur vakið nokkra athygli enda ekki daglegt brauð að ský með þessa lögun sjást á lofti yfir Reykjavík.

Vakthafandi veðurfræðingur segir í svari við fyrirspurn Vísis að um sé að ræða svokölluð vindskafin netjuský sem eru í um tveggja til sex kílómetra hæð. Þau myndast yfir og við fjöll þegar hvasst er. Nánari upplýsingar má lesa á vef Veðurstofunnar.

Margrét Weisshappel, grafískur hönnuður, náði svipuðum myndum í morgunsárið á leið til vinnu úti á Granda.

Skýin sem Margrét myndaði í morgun.Margrét Weisshappel





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.