Jafnt í nágrannaslagnum í Malmö

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Arnór Traustason í leik með Malmö.
Arnór Traustason í leik með Malmö. vísir/getty
Malmö og FC Kaupmannahöfn gerðu jafntefli í skandinavískum grannaslag í Evrópudeildinni í kvöld.

Gestirnir frá Kaupmannahöfn komust yfir undir lok uppbótartíma fyrri hálfeiks þegar Lasse Nielsen lenti í því að skora sjálfsmark.

Malmö jafnaði metin snemma í seinni hálfleik með marki frá Markus Rosenberg eftir fyrirgjöf Jo Inge Berget.

Arnór Ingvi Traustason byrjaði leikinn á bekknum en kom inn á 58. mínútu leiksins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira