Lífið

Setti hundrað þúsund manna Facebook hóp á hliðina með boði í saumaklúbb

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Færslan sem setti allt á hliðina í Gefins, allt gefins hópnum í kvöld. Enginn verður svikinn af því að renna í gegnum athugasemdirnar.
Færslan sem setti allt á hliðina í Gefins, allt gefins hópnum í kvöld. Enginn verður svikinn af því að renna í gegnum athugasemdirnar.
„Eigum við ekki að fara að hittast? Mér finnst alveg kominn tími á saumaklúbb, Dóra María hélt síðast. Viljum við halda okkur við stafrófið eða vill einhver sjálfboðaliði hafa næsta klúbb?“

Þannig hljóðaði Facebook-færsla hjá Guðrúnu Kristinsdóttur hjúkrunarfræðingi í kvöld. Síðan eru liðnir nokkrir klukkutímar og hafa yfir eitt þúsund manns skrifað athugasemd við færsluna og enn fleiri líkað við hana. 

Ástæðan er sú að færsla Guðrúnar fór ekki í saumaklúbbshópinn hennar á Facebook heldur í hópinn „Gefins, allt gefins!“ sem frá og með júlí í sumar hefur talið yfir 100 þúsund meðlimi. 

Þangað setur fólk inn færslur þegar það býður notaða hluti, yfirleitt húsgögn eða föt, án endurgjalds.

Það mömmulegasta sem ég hef gert

Guðrún áttaði sig fljótlega á því að færslan hefði ratað í rangan hóp. Óhætt er að segja að meðlimir „Gefins, allt gefins“ hafi haft verulega gaman af mistökunum.

„OK þetta fór í vitlausan hóp  :)  en verður ekki bara stór saumaklúbbur á Arnarhólnum á föstudagskvöldið? Þetta er það mömmulegasta sem ég hef gert, segja krakkarnir mínir,“ skrifaði Guðrún í framhaldinu.

Í framhaldinu tók einn framtakssamur sig til og ákvað að blása til saumaklúbbs á Arnarhóli laugardaginn 2. nóvember á milli klukkan 14 og 17. Sem stendur hafa 345 boðað komu sína og enn fleiri áhugasamir.



Vinkonurnar skellihlæja

Guðrún útskýrir í samtali við Fréttablaðið í kvöld að saumaklúbburinn hennar sé þrjátíu ára gamall en þær vinkonurnar séu allar hjúkrunarfræðingar. 

„Þeim finnst þetta náttúrulega drepfyndið,“ segir Guðrún um viðbrögðin í samtali við Fréttablaðið.

Ýmsir hafa boðist til að mæta með veitingar í saumaklúbbinn, bjóða fram tónlistaratriði og þakka kærlega fyrir frábært boð. Það verður enginn svikinn af því að renna í gegnum athugasemdirnar við færslu Guðrúnar.

Sjálf segist Guðrún að sjálfsögðu ætla að mæta ásamt vinkonum sínum úr saumaklúbbnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.