Alfreð og félagar áttu litla möguleika gegn Leverkusen | Bayern á toppinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð lék fyrstu 68 mínúturnar gegn Bayer Leverkusen.
Alfreð lék fyrstu 68 mínúturnar gegn Bayer Leverkusen. vísir/getty
Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg sem tapaði fyrir Bayer Leverkusen, 0-3, í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Alfreð var tekinn af velli á 68. mínútu.

Augsburg er í 12. sæti deildarinnar. Liðið hefur aðeins unnið einn af fyrstu sex deildarleikjum sínum á tímabilinu.

Bayern München tyllti sér á topp deildarinnar með 2-3 sigri á Paderborn á útivelli.

Serge Gnabry, Philippe Coutinho og Robert Lewandowski skoruðu mörk Bayern. Sá síðastnefndi hefur skorað í öllum sex deildarleikjum Bayern á tímabilinu, alls tíu mörk.

Schalke varð fyrst liða til að vinna RB Leipzig, 1-3. Með sigrinum jafnaði Schalke Leipzig að stigum í 2. sæti deildarinnar. Liðin eru með 13 stig, líkt og Borussia Mönchengladbach sem vann 0-3 sigur á Hoffenheim. Leipzig, Schalke og Gladbach eru einu stigi á eftir toppliði Bayern.

Þá bar Wolfsburg sigurorð af Mainz, 0-1.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira