Olísdeildarspáin 2019/20: Fjölnisliðið stoppar stutt á meðal þeirra bestu Henry Birgir Gunnarsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa 22. ágúst 2019 10:00 Fjölnismenn unnu Grill 66 deild karla á síðustu leiktíð. Mynd/Fjölnir/Þorgils Garðar Gunnþórsson
Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins sautján daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að fyrsta liðinu í spá okkar.Spá Vísis fyrir Olís deild karla 2019-20 1. sæti 2. sæti 3. sæti 4. sæti 5. sæti 6. sæti 7. sæti 8. sæti 9. sæti 10. sæti 11. sæti - (23. ágúst)12. sæti - Fjölnir Íþróttadeild spáir Fjölni tólfta og neðsta sæti og að nýliðarnir stoppi stutt við í Olís-deildinni. Eftir að hafa verið nokkrum sinnum nálægt því að komast upp í efstu deild tókst Fjölni það loks vorið 2017. Fjölnismenn léku í fyrsta sinn í efstu deild tímabilið 2017-18. Þá enduðu þeir í ellefta og næstneðsta sæti og féllu. Þrátt fyrir að hafa misst sterka leikmenn á borð við Kristján Örn Kristjánsson og Svein Jóhannsson vann Fjölnir Grill 66-deildina örugglega á síðasta tímabili. Fjölnismenn fengu 33 stig af 36 mögulegum, sjö stigum meira en liðið í 2. sæti. Þeir komust líka í undanúrslit í Coca Cola-bikarnum þar sem þeir töpuðu fyrir Valsmönnum á umdeildan hátt. Fjölnir mætir nánast með sama lið til leiks og á síðasta tímabili. Liðið er ungt og breiddin ekki mikil. Leikmenn á borð við Breka Dagsson og Björgvin Pál Rúnarsson búa hins vegar af reynslunni í Olís-deildinni fyrir tveimur árum.Komnir/Farnir: Engar breytingar á leikmannahópnum.Fjölnir varð í 4. sæti yfir stolna bolta í Olís deild karla 2017-18.Vísir/ErnirHBStatz tölurnar frá síðasta tímabili Fjölnir lék síðast í Olís deildinni veturinn 2017 til 2018 þar sem liðið varð að sætta sig við næstsíðasta sætið og fall úr deildinni. Fjölnismenn voru tveimur stigum frá öruggu sæti en liðið vann þó bara 3 af 22 leikjum sínum.Sóknarleikur Fjölnis 2017/18 í tölum HBStatz: Mörk skoruð í leik - 10. sæti (26,4) Skotnýting - 11. sæti (54,2%) Vítanýting - 10. sæti (67,5%) Hraðaupphlaupsmörk - 10. sæti (61) Stoðsendingar í leik - 9. sæti (10,3) Tapaðir boltar í leik - 10. sæti (10,6)Vörn og markvarsla Fjölnis 2017/18 í tölum HBStatz: Mörk fengin á sig í leik - 10. sæti (29,9) Hlutfallsmarkvarsla - 11. sæti (26,9%) Varin víti - 11. sæti (10) Stolnir boltar - 4. sæti (98) Varin skot í vörn - 12. sæti (32) Lögleg stopp í leik - 8. sæti (17,5)Breki Dagsson er prímusmótorinn í sóknarleik Fjölnis.Mynd/S2 SportLíklegt byrjunarlið Fjölnis í vetur Markvörður - Bjarki Snær Jónsson - 25 ára Vinstra horn - Brynjar Loftsson - 22 ára Vinstri skytta - Björgvin Páll Rúnarsson - 23 ára Miðja - Breki Dagsson - 24 ára Hægri skytta - Hafsteinn Ramos Rocha - 19 ára Hægra horn - Bergur Elí Rúnarsson - 24 ára Lína - Arnar Máni Rúnarsson - 19 ára Varnarmaður - Sveinn Þorgeirsson - 32 áraHafsteinn Óli Berg Ramos Rocha gæti sprungið út í vetur.Mynd/S2 SportFylgist með Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha (f. 2000) var í U-18 ára landsliðinu sem vann silfur á EM í fyrra og lék með sama hópi á HM í sumar. Hafsteinn er efnileg og hávaxin örvhent skytta sem gæti látið að sér kveða í vetur. Á ýmislegt eftir ólært og getur tekið betri ákvarðanir en hæfileikarnir eru til staðar.Kári Garðarsson gerði frábæra hluti með kvennalið Gróttu.Vísir/ErnirÞjálfarinn Kári Garðarsson er á sínu öðru tímabili með Fjölni. Á því fyrsta vann liðið Grill 66 deildina örugglega og var óheppið að komast ekki í bikarúrslit. Kári var áður þjálfari hjá Gróttu. Hann náði frábærum árangri með kvennalið félagsins sem hann gerði tvisvar sinnum að Íslandsmeisturum, einu sinni að bikarmeisturum og einu sinni að deildarmeisturum. Hann stýrði karlaliði Gróttu tímabilið 2017-18 og er enn íþróttastjóri félagsins. Hvað segir sérfræðingurinn?„Það eru furðulegir hlutir að gerast í Grafarvoginum vil ég meina. Það er ekkert að frétta á leikmannamarkaðnum sem er mjög óvenjulegt hjá liði sem er að koma upp í deildina,“ segir Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur hjá Seinni bylgjunni. „Það er mikill munur á þessum deildum og maður hefði haldið að liðið þyrfti að styrkja sig um einhverja leikmenn. Það er kannski ekki heillandi að koma í Grafarvoginn þar sem er aðstöðuleysi og svona. Ég veit það ekki. „Þeir eru samt með ungt og skemmtilegt lið og mikið heimamenn. Þeir gerðu ekki frábæra hluti er þeir komu upp síðast en hafa leikmenn eins og Breka og Björgvin sem og Hafþór. Hafa flotta útilínu en ég held að þetta verði langt og erfitt tímabil hjá þeim.“Fjölnir var síðast í Olís deildinni tímabilið 2017-18 en endurheimti strax sætið sitt eftir aðeins eitt ár í Grill 66 deild karla.Mynd/Fjölnir/Þorgils Garðar GunnþórssonHversu langt er síðan að Fjölnir ... ... varð Íslandsmeistari: Aldrei ... varð deildarmeistari: Aldrei ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: Aldrei ... varð bikarmeistari: Aldrei ... komst í bikarúrslit: Aldrei ... komst í úrslitakeppni: Aldrei ... komst í undanúrslit: Aldrei ... komst í lokaúrslit: Aldrei ... féll úr deildinni: 1 ár (2018) ... kom upp í deildina: Nýliði í árGengi Fjölnis í deildakeppninni undanfarin átta tímabil 2018-19 B-deild (1. sæti) 2017-18 11. sæti í deildinni 2016-17 B-deild (1. sæti) 2015-16 B-deild (2. sæti) 2014-15 B-deild (3. sæti) 2013-14 B-deild (9. sæti) 2012-13 B-deild (7. sæti) 2011-12 B-deild (6. sæti)Gengi Fjölnis í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil 2018-19 B-deild 2017-18 Ekki í úrslitakeppni 2016-17 B-deild 2015-16 B-deild 2014-15 B-deild 2013-14 B-deild 2012-13 B-deild 2011-12 B-deildBrynjar Loftsson tekur við bikarnum síðasta vor.Mynd/Fjölnir/Þorgils Garðar GunnþórssonAð lokum Fallbarátta verður hlutskipti Fjölnismanna sem yrðu væntanlega hæstánægðir með 10. sætið. Fjölnir er með nokkuð þéttan kjarna heimamanna og þegar liðið var í Olís-deildinni tímabilið 2017-18 veitti það flestum verðuga keppni. Herslumuninn vantaði hins vegar alltof oft. Fjölnismenn vilja einnig væntanlega sleppa við fíaskóið sem var utan vallar tímabilið 2017-18. Fjölnir hefði þurft að styrkja hópinn fyrir tímabilið og hætt er við að of fáir leikmenn þurfi að bera of þungar byrðar eins og síðast þegar liðið var í Olís-deildinni. Markvarslan er einnig stórt spurningarmerki.
Olís-deild karla Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Sjá meira