Bíó og sjónvarp

Kit Harington hataði drekasenurnar: „Þetta er ekki leiklist“

Andri Eysteinsson skrifar
Leikarinn Kit Harington, sem lék hlutverk Jon Snow í HBO þáttunum Game of Thrones
Leikarinn Kit Harington, sem lék hlutverk Jon Snow í HBO þáttunum Game of Thrones Getty/Gregg DeGuire
Breski Game of Thrones leikarinn Kit Harington, sem lék hlutverk Jon Snow í HBO þáttunum Game of Thrones sem sýndir voru á Stöð 2, segir að atriði þar sem persónu Harington flýgur um á dreka hafi farið verulega í taugarnar á honum.

Leikarinn, sem er 32 ára gamall, hefur áður greint frá því að vinna við drekaatriðin hafi reynst heldur óþægileg fyrir miðsvæðið.

„Emilia Clarke hefur verið að væla yfir þessu í nokkrar þáttaraðir, ég gaf lítið fyrir það. Ég sagði henni að hún hefði ekki þurft að vaða drulluna á tökustað í Norður-Írlandi. Sitjandi inni í upphituðu stúdíói, ekkert mál,“ sagði Harington við Hollywood Reporter.

Reyndin var þó önnur, Harington viðurkennir að senur hans í stúdíóinu hafi verið ömurlegar. „Hún hafði algjörlega rétt fyrir sér, þetta var skelfilegt. Þetta er ekki leiklist með nokkru móti svo var þetta mjög óþægilegt fyrir karlmann,“ sagði Harington sem mun væntanlega ekki þurfa að endurtaka leikinn nokkurn tímann enda er þáttaröðin liðin undir lok.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.