Íslenski boltinn

Lagleg mörk í sigri Þórs/KA á ÍBV | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hulda Ósk skoraði sín fyrstu deildarmörk í sumar gegn ÍBV í dag.
Hulda Ósk skoraði sín fyrstu deildarmörk í sumar gegn ÍBV í dag. vísir/vilhelm
Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði tvö lagleg mörk þegar Þór/KA bar sigurorð af ÍBV, 5-1, í Pepsi Max-deild kvenna í dag.

Fyrir leikinn í dag höfðu Akureyringar tapað þremur leikjum í röð í deild og bikar án þess að skora.

Agnes Birta Stefánsdóttir og María Catharina Ólafsdóttir Gros skoruðu fyrir Þór/KA í dag, sín fyrstu mörk í efstu deild. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir var einnig á skotskónum.

Caroline Van Slambrouck skoraði mark ÍBV sem er í 6. sæti deildarinnar með tólf stig, tveimur stigum frá fallsæti. Þór/KA er í 3. sætinu með 20 stig.

Mörkin úr leiknum á Akureyri í dag má sjá hér fyrir neðan.

Klippa: Þór/KA 5-1 ÍBV







Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×