Ágúst: Þeir byrjuðu ekki þennan leik og það var mín ákvörðun 7. júlí 2019 21:51 Ágúst Gylfason. vísir/bára „
Þetta var skrýtið. Mér fannst við vera með fulla stjórn á leiknum en hleypum þeim inn í leikinn með tveimur mörkum og svo kviknar aðeins í okkur þegar þau eru komin.“ „Þeir falla niður og við sköpum okkur ágætis færi til að skora. Náum að skora eitt mark og þá hélt maður að við myndum setja annað en það náðist því miður ekki í dag,“ sagði niðurlútur Ágúst Gylfason, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-1 tap sinna manna gegn nágrönnunum í HK. Ágúst var ekki sammála undirrituðum um að leikurinn hefði verið svipaður og fyrri leikurinn þar sem honum fannst Blikar vera eftir á í öllum aðgerðum. „Þetta var allt öðruvísi en fyrri leikurinn. Þar mættum við bara ekki til leiks og vorum undir í öllu. Í dag fannst mér við töluvert betri en sá fyrri var bara lélegur af okkar hálfu. Við héldum boltanum betur í dag og sköpuðum fullt af færum,“ sagði Ágúst um muninn á milli leikjanna tveggja. Aron Bjarnason og Gísli Eyjólfsson byrjuðu báðir á varamannabekk Breiðabliks í dag. Aron er að fara til Ungverjalands nú 20. júlí á meðan Gísli er nýkominn til baka eftir að hafa verið á láni hjá Mjallby í Svíþjóð. Aðspurður hvort þeir hefðu mögulega átt að byrja leikinn þá sagði Ágúst að svo hefði vel mátt vera. „Ég velti öllu fyrir mér varðandi leikmennina, hver á að byrja og annað. Þeir byrjuðu ekki þennan leik og það var mín ákvörðun. Kannski var það röng ákvörðun og ég verð að lifa með því,“ sagði Ágúst að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Í beinni: Nott. Forest - Arsenal | Skytturnar í Skírisskógi Enski boltinn Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn Í beinni: Fram - Afturelding | Sæti í bikarúrslitaleik í boði Handbolti Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Handbolti Fleiri fréttir Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Sjá meira