Skoðun

Fjallkonan

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Við lifum á tímum þar sem öfgasinnuð öfl sækja stöðugt á með tilheyrandi hræðsluáróðri, útlendingaandúð og kvenfyrirlitningu. Ekki er í boði að gefa eftir í baráttunni við þessi hættulegu öfl sem sækja að opnum lýðræðislegum þjóðfélögum. Þótt þessi öfl hafi ekki náð sterkri fótfestu í íslensku samfélagi þá bæra þau samt á sér og hætta er á að þau breiði úr sér. Hér finnast svo sannarlega einstaklingar sem vilja ekki sjá fólk sem aðhyllist önnur trúarbrögð en kristni setjast að á Íslandi. Þetta fólk hatast sérstaklega við múslima og vill jafnvel meina þeim að iðka trú sína hér á landi. Hér eru líka einstaklingar sem vilja svipta konur sjálfsákvörðunarrétti til þungunarrofs, en sá réttur er grunnur að kvenfrelsi. Hér finnast afturhaldshópar sem staðfastlega neita því að loftslagsbreytingar séu af mannavöldum og kvarta undan stöðugu væli umhverfisverndarsinna.

Baráttan stendur á milli öfgasinnaðra afla og þeirra frjálslyndu. Mikilvægt er að allir sem vilja búa í kærleiksríku samfélagi þar sem jafnrétti og víðsýni eru við völd taki sér stöðu í þessari baráttu gegn öfgaöflunum, en sitji ekki sinnulausir hjá. Einmitt vegna þessa mikilvægis var gleðilegt að heyra fjallkonuna flytja á 17. júní ljóð Bubba Morthens, Landið flokkar ekki fólk, sem er hylling til fjölmenningarsamfélagsins.

Einhverjir eru enn ekki búnir að ná sér eftir þessi ágætu skilaboð fjallkonunnar. Þessir einstaklingar finna sér athvarf á netinu þar sem þeir geta látið óánægju sína og gremju í ljós. Reyndar var viðbúið að hópur fólks myndi telja að blettur hefði fallið á æru fjallkonunnar þegar hún á þessum einstaka hátíðisdegi mælti orðin: „Við skulum fagna fjölmenningu hér í miðnætursólinni?…“ Fjallkonan, sem þessum hópi finnst að eigi að vera hæfilega þjóðrembuleg, hefur breyst í frjálslyndan alþjóðasinna og talar máli samvinnu og víðsýni. Hvað skyldi hún gera næst?

Það sem gerði þessi skilaboð Bubba Morthens svo öflug var ekki síst sérlega glæsilegur flutningur leikkonunnar sem var í hlutverki fjallkonunnar. Aldís Amah Hamilton fór með ljóðið af innlifun og hreif fólk með sér – fyrir utan þá sem nú veina sárt á netinu. Þar er kvartað yfir því að leikkonan sé ekki alíslensk en faðir hennar er Bandaríkjamaður af afrískum uppruna, sem einhverjum finnst engan veginn gott. Þusað er um að 17. júní sé dagur Íslendinga en ekki fjölmenningar. Sagt er að þessi þáttur athafnarinnar við Austurvöll hafi verið Jóni Sigurðssyni og þeim sem börðust fyrir sjálfstæði þjóðarinnar til háborinnar skammar.

Boðskapur um skilning og samvinnu manna á meðal, hvaðan sem þeir koma, á ekki greiðan aðgang að hjörtum allra Íslendinga. Um múrana sem menn skapa með eigin fordómum og tortryggni segir Bubbi í ljóðinu: „rammgerðastir eru þeir sem/reistir eru í höfðum manna“. Hvað er þá til ráða? Svar Bubba er: „Rífum þá niður og göngum inn í víðáttu frelsisins og fögnum lífinu.“

Já, það dugar!




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×