Síle áfram eftir vítaspyrnukeppni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 29. júní 2019 09:30 Sanchez tryggði sigurinn með síðustu spyrnu Síle vísir/getty Ríkjandi Suður-Ameríkumeistarar Síle komust í undanúrslit Suður-Ameríkukeppninnar í nótt eftir sigur á Kólumbíu í vítaspyrnukeppni. Liðunum tókst ekki að skora í venjulegum leiktíma né í framlengingu svo grípa varð til vítaspyrnukeppni. Þar fóru allar spyrnurnar inn þar til komið var að síðustu umferð vítaspyrnukeppninniar. William Tesillo hitti ekki á markrammann úr sinni spyrnu og Alexis Sanchez gat tryggt Síle sigurinn. Hann gerði það af öryggi og Síle spilar til undanúrslita. Sílemenn eru orðnir vanir vítaspyrnukeppnum en í síðustu tveimur úrslitaleikjum í Suður-Ameríkukeppninni hafa þeir mætt Argentínu í vítakeppni og haft betur í bæði skiptin. Spyrnur þeirra í nótt voru því allar mjög öruggar og átti David Ospina litla möguleika á að verja þær í marki Kólumbíu. Copa América