Fótbolti

Verðmiðinn á Donny van de Beek of hár fyrir Real Madrid

Anton Ingi Leifsson skrifar
Donny van de Beek í leik með Hollandi í úrslitum Þjóðadeildarinnar.
Donny van de Beek í leik með Hollandi í úrslitum Þjóðadeildarinnar. vísir/getty
Real Madrid er ekki tilbúið að reiða fram 65 milljónir evra til þess að kaupa miðjumanninn Donny van de Beek.

Van de Beek er miðjumaður Ajax en hann átti afar gott síðasta tímabil. Hann var í lykilhlutverki hjá Ajax sem vann tvennuna heima fyrir og komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar.







Real hefur horft til Hollendingsins til þess að vera ódýrari kosturinn, samanborinn við Paul Pogba, sem Real hefur haft augastað í allt sumar.

Ajax hefur hins vegar sett verðmiðann á de Beek upp í 65 milljónir evra og forráðamenn Real eru ekki hrifnir af því. Þeir hafa ekki áhuga á að borga það verð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×