Skoðun

Lög unga fólksins

Sighvatur Arnmundsson skrifar
Íslendingar fögnuðu í gær 75 ára afmæli lýðveldisins. Það hafa vissulega skipst á skin og skúrir á lýðveldistímanum en þrátt ýmis áföll er staða landsins góð í alþjóðlegum samanburði. Næstu 75 árum þarf svo sannarlega ekki að kvíða miðað við áherslur og málflutning ungmennanna sem komu saman í Alþingishúsinu í tilefni lýðveldisafmælisins.

Tæplega 70 ungmenni á aldrinum 13-16 ára tóku þar þátt í sérstökum þingfundi. Unga fólkið hafði undirbúið sig vel og unnið málefnavinnu í þremur málaflokkum sem þeim finnst skipta mestu máli; umhverfis- og loftslagsmálum, jafnréttismálum og heilbrigðismálum. Í ályktun fundarins sem var afhent forsætisráðherra er ekki aðeins að finna lýsingu á þeim vandamálum sem við stöndum frammi fyrir, heldur líka lausnir.

„Ungmenni telja löngu tímabært að íslensk stjórnvöld taki til hendinni og verndi náttúruna fyrir frekari skaða,“ segir í niðurlagi ályktunar um umhverfis- og loftslagsmál. Þannig leggja ungmennin áherslu á lausnir eins og endurheimt votlendis, fækkun óumhverfisvænna bíla, mengunarskatt á bensínbíla, aðgerðir gegn matarsóun og bætta flokkun sorps.

Sem betur fer virðist hér vera að vaxa úr grasi kynslóð sem leggur áherslu á jafnréttismál í sinni víðtækustu mynd. Kynslóð sem hafnar úreltum lögmálum á borð við launamun kynjanna og slæma stöðu fatlaðra í samfélaginu. Kynslóð sem skilur ekki af hverju innflytjendur eru í verri stöðu þegar kemur að vinnumarkaði og þátttöku í íþróttum. Þá benda þau líka á það áhyggjuefni að Ísland sé að dragast aftur úr varðandi réttindi hinsegin fólks.

Í ályktun um heilbrigðismál beinir unga fólkið sjónum að mikilvægi forvarna og virkrar þátttöku barna og unglinga í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Þá er ánægjulegt að sjá ungmennin sjálf segja að skoða verði snjalltækjanotkun og áhrif hennar á þroska barna.

Eins og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra benti réttilega á þegar hún tók við ályktun ungmennanna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar væri öðruvísi um að litast í heiminum ef áherslur barna og ungmenna hefðu meira vægi. Það er mikilvægt að þeir sem eru við stjórnvölinn hlusti á raddir þessa hóps eins og raddir annarra hópa. Í gær voru ekki sett nein lög á Alþingi en vonandi var einhverjum fræjum sáð til framtíðar. Vonandi hafa sem flestir þingmenn fylgst með umræðunum því þær einkenndust bæði af víðsýni og umburðarlyndi. Það eru viðhorf sem eru því miður allt of sjaldan ríkjandi í þessum sal.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×