Bíó og sjónvarp

Enginn þáttur fengið eins góðar viðtökur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tsjernóbíl er fimm þátta sería sem hefur rækilega slegið í gegn.
Tsjernóbíl er fimm þátta sería sem hefur rækilega slegið í gegn. HBO

Þættirnir Tsjernóbíl hafa heldur betur slegið í gegn um allan heim að undanförnu en þeir eru byggðir eru á atburðum sem áttu sér stað árið 1986 í Tsjernóbíl í Úkraínu. Alls eru þættirnir fimm talsins og eru á dagskrá á Stöð 2 á þriðjudagskvöldum.

Fjórði þátturinn fór í loftið í gær og verður sá síðasti eftir tæplega viku. Tsjernóbíl er með hæstu einkunn í sögu vefsins IMDB en þegar þessi grein er skrifuð eru þeir með 9,7 í einkunn og hefur ekkert efni fengið þann dóm almennings áður í sögunni.

52.000 manns hafa gefið þeim einkunn en í öðru til þriðja sæti eru þættirnir Planet Earth II og Band of Brothers með 9,5.

Um er að ræða eitt stærsta kjarnorkuslys í sögunni þegar geislavirk efni sluppu út í andrúmsloftið og höfðu afdrifarík áhrif á umhverfið sem enn sér ekki fyrir endan á.

Þættirnir fjalla um sögu þeirra sem unnu í verinu, bjuggu í kring og þeirra sem unnu að því að sporna við frekari eyðileggingu. Með aðalhlutverk fara Jared Harris, Stellan Skarsgaard og Emily Watson en þess má geta að íslenski leikarinn Baltasar Breki fór með hlutverk í þáttunum.

Leikstjórn er í höndum Johan Renck (Breaking Bad) og Hildur Guðnadóttir sér um tónlistina en þeir koma úr smiðju HBO.


Tengdar fréttir

Byggja á stærsta kjarnorkuslysi sögunnar

Tsjernóbíl hefur göngu sína á Stöð 2 annað kvöld. Þættirnir byggja á einu stærsta kjarnorkuslysi sögunnar þegar sprenging varð í kjarnorkuveri í Úkraínu árið 1986 og geislavirk efni sluppu út í andrúmsloftið í gífurlegu magni. Þrjátíu og þremur árum síðar sér ekki fyrir endann á áhrifum slyssins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.