Lífið

Duran Duran úr nýju Laugardalshöllinni yfir í þá gömlu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Villtir sætir strákar komnir til New York 1981 tilbúnir að sigra heiminn.
Villtir sætir strákar komnir til New York 1981 tilbúnir að sigra heiminn. David Tan/Shinko Music/Getty Images
Sena Live hefur tekið yfir framkvæmd fyrirhugaðra tónleika Duran Duran hér á landi þann 25. júní næstkomandi. Tónleikarnir verða fluttir frá nýju Laugardalshöllinni yfir í þá gömlu.

Tilkynnt var í síðasta mánuði að breska hljómsveitin sögufræga væri á leið til Íslands á vegum Mono og áttu tónleikarnir að vera haldnir i nýju Laugardalshöllinni.

Í tilkynningu frá Senu segir hins vegar að fyrirtækið hafi tekið yfir tónleikana og fært þá yfir í gömlu Laugardalshöllina sem taki 5.500 gesti.

„Með þessu geta aðdáendur sveitarinnar upplifað meiri nánd við sveitina,“ segir á vef Senu Live en allir núverandi miðahafar munu fá tölvupóst sem innihaldi nýja miða.

Laugardalshöllinni verður skipt í tvö svæði, A-svæði sem er á gólfinu næst sviðinu og B-svæði, fyrir aftan A-svæðið. Þá verður einnig stúkan aftast í salnum notuð og býðst gestum með A-miða að fá sér sæti þar. Reglan fyrstur kemur, fyrstur fær gildir um sætin í stúkunni.

„Ef einhver af einhverjum ástæðum óskar endurgreiðslu verður hún afgreidd um hæl,“ segir á vef Senu Live.

Duran Duran er án efa ein sögufrægasta hljómsveit popptónlistarinnar. Ferill hennar spannar fjóra áratugi og hefur hljómsveitin selt yfir 100 milljónir platna, unnið til tveggja Grammy verðlauna, tveggja Brit verðlauna, hlotið sjö sinnum Lifetime Achievement verðlaunin auk fjölmargra annarra viðurkenninga. Hljómsveitin reis hratt upp á stjörnuhimininn og varð á örskotsstundu þekkt um allan heim.

Hún hefur einu sinni áður komið til Íslands en árið 2005 kom hljómsveitin fram í Egilshöll. 


Tengdar fréttir

Duran Duran á leið til Íslands

Duran Duran hefur selt yfir hundrað milljónir hljómplatna, hlotið tvenn Grammy-verðlaun og tvenn Brit-verðlaun auk fjölda annarra viðurkenninga á farsælum ferli sem nú þegar spannar rösklega fjörutíu ár.

Spenntur fyrir kraftinum í íslensku aðdáendunum

Áratugalangur draumur íslenskra aðdáenda Duran Duran rættist loks fyrir fjórtán árum þegar hinir fimm fræknu héldu tónleika í Reykjavík. Þeir munu endurtaka leikinn í Laugardalshöllinni í næsta mánuði. Bassaleikarinn John Taylor segir kraftinn í Íslendingum eftirminnilegan og að það sé undir okkur komið hversu stuðið verði mikið núna.

Nick Rhodes: Duran Duran aldrei í Eurovision

Hljómsveitin Duran Duran, sem heldur tónleika á Íslandi eftir rúman mánuð, mun aldrei taka þátt í Eurovision. Þetta segir Nick Rhodes, hljómborðsleikari sveitarinnar. Hann segist ekki hafa fylgst með söngvakeppninni í tíu ár hið minnsta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.