Hlé á erjum Trump við Kanada en stigmögnun gagnvart Evrópu Kjartan Kjartansson skrifar 17. maí 2019 19:45 Trump hefur lagt verndartolla á ýmsar innfluttar vörur á grundvelli skýrslna sem hann hefur látið viðskiptaráðuneytið skrifa um að vörurnar ógni þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Vísir/EPA
Bandarísk og kanadísk stjórnvöld hafa náð samkomulagi sem á að binda enda á innflutningstolla á kanadískt stál í Bandaríkjunum. Búist er við að Bandaríkin geri sambærilegt samkomulag við Mexíkó von bráðar. Á sama tíma ögra Trump forseti öðrum bandalagsríkjum með því að lýsa því yfir að innfluttir bílar ógni þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Verndartollar sem Trump-stjórnin lagði á innflutt stál og ál í fyrra hafa verið Þrándur í Götu nýs fríverslunarsamnings Norður-Ameríkuríkjanna þriggja sem á að taka við af NAFTA-samningnum. Í sameiginlegri yfirlýsingu bandaríska og kanadískra stjórnvalda í dag kom fram að 25% tollur á stál og 10% tollur á ál yrði afnuminn innan tveggja sólahringa, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Hvíta húsið jók spennu í samskiptum sínum við önnur bandalagsríki þegar ríkisstjórn Trump tilkynnti um að hann hefði lýst því yfir að innfluttir bílar og bílapartar ógnuðu þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Það er sama réttlæting og hann notaði til þess að leggja tolla á stál og ál, jafnvel frá nánustu bandalagsríkjum Bandaríkjanna. Trump ákvað þó að fresta því að taka ákvörðun um hvort innflutningstollar yrðu lagðir á innflutta bíla í sex mánuði. Þeim tíma ætlar hann að verja í viðræður við Evrópuríki og Japan um viðskiptasamband þeirra, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Innflutningstollar allt að 25% á innflutta bíla hafa verið til skoðunar innan Hvíta hússins. Engu að síður brugðust erlend ríki, bílaframleiðendur og salar ókvæða við ákvörðun Trump og kröfu um að viðskiptalönd Bandaríkjanna myndu fallast á innflutningskvóta. Cecilia Malmström, viðskiptastjóri Evrópusambandsins, hafnaði því algerlega að evrópskir bílar ógnuðu þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Sambandið væri tilbúið að gera takmarkaðan viðskiptasamning en ekki semja um ákvarðanir sem stríddu gegn reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Á meðan geisar viðskiptastríð Trump við Kína áfram. Kínverjar lögðu eigin verndartolla á bandarískar vörur á mánudag eftir að Trump lagði tolla á um 200 milljarða dollara af kínverskum vörum til viðbótar við þá tolla sem hann hefur þegar komið á. Christine Lagarde, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, varaði við því í dag að áframhaldandi viðskiptastríð gæti verið ógn við hagkerfi heimsins.
Bandaríkin Evrópusambandið Kanada Kína Tengdar fréttir Viðskiptastríðið getur komið niður á hagkerfi heimsins Forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varar við afleiðingum viðskiptastríðs Bandaríkjanna og Kína fyrir heimsbyggðina. 17. maí 2019 18:23 Meiri harka að færast í viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína Bandaríkjamenn hafa meira en tvöfaldað innflutningstolla á vörur að verðmæti um 200 milljarða dollara frá Kína og svo virðist sem verulega hafi harðnað á viðskiptastríði þjóðanna tveggja. 10. maí 2019 07:15 Mest lesið Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Fleiri fréttir Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira
Viðskiptastríðið getur komið niður á hagkerfi heimsins Forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varar við afleiðingum viðskiptastríðs Bandaríkjanna og Kína fyrir heimsbyggðina. 17. maí 2019 18:23
Meiri harka að færast í viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína Bandaríkjamenn hafa meira en tvöfaldað innflutningstolla á vörur að verðmæti um 200 milljarða dollara frá Kína og svo virðist sem verulega hafi harðnað á viðskiptastríði þjóðanna tveggja. 10. maí 2019 07:15