Fótbolti

Klopp: Veit ekki hvort við getum spilað betur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jurgen Klopp var ánægður með frammistöðu sinna manna í kvöld
Jurgen Klopp var ánægður með frammistöðu sinna manna í kvöld vísir/getty
Jurgen Klopp sagðist ekki viss um að sínir menn hefðu getað spilað betur gegn Barcelona í kvöld þrátt fyrir 3-0 tap.

Leikur Barcelona og Liverpool á Camp Nou var stórkostleg skemmtun og mikið um færi á báða bóga. Leikmenn Liverpool náðu hins vegar ekki að skora mörk á meðan Barcelona gerði það.

„Frammistaða okkar var mjög góð og strákarnir spiluðu stórkostlegan leik,“ sagði Klopp eftir leikinn. „Ég veit ekki hvort við getum spilað betur.“

„Þetta snýst um að skora mörk en frammistaðan var góð.“

„Svona er fótboltinn. Þetta eru erfið úrslit en við verðum að sætta okkur við þau.“

Liverpool þarf að skora að minnsta kosti þrjú mörk í seinni leiknum á Anfield í næstu viku, ef Barcelona nær að skora útivallarmark þá þarf Liverpool að vinna með fjögurra marka mun.

„Barcelona sýndi í leiknum að þeir eru með meiri reynslu. Við sáum það til dæmis í því hvernig þeir tóku hraðann úr leik okkar.“

„En við eigum seinni leikinn eftir og þar höfum við okkar fólk.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×