Tónlist

Föstudagsplaylisti Krumma Björgvinssonar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Krummi á góðri stundu.
Krummi á góðri stundu. Aðsend
Krummi Björgvinsson hefur unnið að tónlist frá unga aldri, enda úr mikilli tónlistarfjölskyldu.

Fyrst vakti hann athygli með síð-harðkjarnasveitinni Mínus, og hefur síðan þá komið víða við. Þar ber helst að nefna verkefnin Legend, Esju og Döpur, en undanfarið hefur hann þar að auki unnið að sinni fyrstu sólóplötu.

Lagalistinn sem Krummi setti saman á mest skylt við sólótónlistina, en ef marka má hljóðdæmi á samfélagsmiðlum byggist hún að miklu leyti á kassagítarspili og tregafullum söng.

Krummi segir listann einmitt vera samsettan af tónlistinni sem hann hlustar mest á. Ef eitthvað þema er í listanum væri það helst plötusafnið hans.

„Er að taka upp sólóplötu þannig að þetta er það sem er mikið á fóninum og bara tónlistarfólk sem ég hef miklar mætur á,“ segir hann um lagavalið.

Auk tónlistarinnar eiga Krummi og kærasta hans Linnea Hellström vegan-veitingastaðinn Veganæs og reka hann í sameiningu.


Tengdar fréttir

Einbeitir sér að sólóferli í framtíðinni

Krummi Björgvinsson hefur átt afdrifaríkt ár. Hann opnaði veitingastaðinn Veganæs með Linneu Hellström og samdi sólóplötu á sama tíma. Nú ætlar hann að einbeita sér að sólóferli sínum næstu ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.