Fótbolti

Atletico fékk skell

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn Atletico náðu ekki að skora mark í dag
Leikmenn Atletico náðu ekki að skora mark í dag vísir/getty
Atletico Madrid fékk skell gegn Espanyol á útivelli í spænsku La Liga deildinni í fótbolta.

Atletico hefur að litlu að keppa í spænsku úrvalsdeildinni, Barcelona er orðið meistari og Atletico er öruggt með Meistaradeildarsæti.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiks skoraði Diego Godin sjálfsmark og gaf heimamönnum í Espanyol forystu í hálfleik.

Borja Iglesias skoraði annað mark Espanyol á 52. mínútu og hann bætti svo öðru marki sínu og þriðja marki heimamanna við á 89. mínútu úr vítaspyrnu.

Leiknum lauk með 3-0 sigri Espanyol sem er í 8. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×