Haukarnir svara Eyjamönnum og fjölmiðlamönnum með eigin yfirlýsingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2019 14:13 Haukarmaðurinn Heimir Óli Heimisson í leik á móti ÍBV. Vísir/Vilhelm
Handknattleiksdeild Hauka hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi höfuðmeiðsli Heimis Óla Heimissonar eftir brot leikmanns ÍBV og eftirlit og meðferð sjúkrateymis Hauka. Ástæður þessarar yfirlýsingar eru sagðar vera tvær yfirlýsingar ÍBV í gær sem aðdróttanir blaðamanna og sumra sérfræðinga “Seinni Bylgjunnar” undanfarna daga. Þorgeir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, skrifar undir yfirlýsinguna sem birtist á heimasíðu Hauka. Haukar eru 2-1 yfir í einvígi sínu á móti Haukum og geta tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu á móti Selfossi með sigri í fjórða leiknum í Vestmannaeyjum annað kvöld. Yfirlýsingu Hauka má sjá hér fyrir neðan.Yfirlýsing frá handknattleiksdeild Hauka Varðandi höfuðmeiðsli Heimis Óla eftir brot leikmanns ÍBV og eftirlit og meðferð sjúkrateymis Hauka. Vegna yfirlýsinga ÍBV í gær, aðdróttana blaðamanna og sumra sérfræðinga “Seinni Bylgjunnar” undanfarna daga, vill Handknattleiksdeild Hauka koma eftirfarandi á framfæri: # Heimir Óli varð fyrir höfuð-hálsáverka eftir þungt högg Kára Kristjáns í leik 2 í Eyjum. # Sjúkrateymi Hauka fylgdist með heilsu Heimis allt frá atvikinu þ.e um kvöldið/nóttina eftir leikinn, skoðun og meðferð föstudag, laugardag og sunnudag og var ákvörðun tekin eftir upphitun í leiknum á sunnudag. # Enginn ofangreindra sérfræðinga eða blaðamenn að undanskyldum Loga Geirssyni, hafði fyrir því að leita sér upplýsinga hjá Haukum um málið þó þeir hafi eytt mestum hluta sunnudagsins undir sama þaki. # Hið sanna er að Heimir fékk mikið högg á efri hluta hálsins og olli það honum miklum einkennum. Á föstudagsmorgni var hann ekki með nein einkenni heilahristings en mikla verki og hreyfiskerðingu upp í hálsi og hægri hluta höfuðs/kjálka. Ekki var ljóst fyrr en í upphitun að hann væri laus við einkennin eins og áður segir. Það eru því miður allt of algengt að íþróttamenn verði fyrir áverkum og förum við ekki varhluta af því frekar en önnur félög. Í úrslitakeppninni fyrir rúmu ári síðan var Daníel Þór Ingason hvíldur í viku í eftir þungt högg á kjálkann í Vestmannaeyjum og nú síðast tekinn út úr leik 2 gegn Stjörnunni í 8 liða úrslitum í varúðarskyni. # Við Haukamenn höfum verið þeirra gæfu aðnjótandi að hafa haft sama sjúkraþjálfara sem farið hefur fyrir okkar sjúkrateymi síðustu 22 ár og hefur alltaf tekið þær ákvarðanir í samráði við fagmenn og án afskipta okkar sem eru í forystu deildarinnar eða þjálfara á hverjum tíma. Með yfirlýsingu ÍBV og aðdróttunum ofangreindra aðila er harkalega vegið að starfsheiðri fagmanns, Heimi Óla og félaginu okkar. # Margir núverandi leikmenn ÍBV þar með talinn umræddur Kári Kristján og þeir Gunnar Berg og Arnar Pétursson hafa leikið með Haukum og notið sérfræðiþekkingar og meðhöndlunar hjá okkur bæði sem okkar leikmenn, og sumir sem leikmenn A landsliðs Íslands og vita þeir fullvel hvernig við störfum. Undanfarin 18 ár hefur Elís Þór starfað fyrir HSÍ og verið með landsliðinu á öllum stórmótum og þar tekið þátt í mörgum erfiðum ákvörðunum um þátttöku okkar landsliðsmanna eftir slys eða veikindi. # Við Haukamenn frábiðjum okkur þá rætnu umræðu sem farið hefur fram um þetta mál og köllum eftir þroskaðri og málefnalegri umræðu ef þarf að taka hana á annað borð. Eins og þetta hefur verið getum við ekki borið hönd yfir höfuð okkar á annan hátt en senda frá okkur þessa yfirlýsingu. Félög eiga ekki að hafa málssvara í “Seinni Bylgjunni” því það er þáttur allra félaga og þeir sem þar sitja eiga að hafa þroska til að taka umræðu og málefni á algerlega hlutlausum forsendum. Það er okkar von að handboltinn verði í fyrirrúmi í framhaldinu í okkar frábæru íþrótt. Þorgeir Haraldsson Formaður hkd Hauka
Olís-deild karla Mest lesið Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Tók einn og hálfan tíma að finna ungu hjólreiðakonuna sem lést Sport Salah setti met í sigri Liverpool Fótbolti Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Fótbolti Þúsund Walesverjar í Dalnum og Åge kallar eftir hjálp Fótbolti Landsliðshópurinn: Sverrir kemur inn og Brynjólfur valinn Fótbolti Margbrotnaði á andliti, gæti verið dofinn fyrir lífstíð en ætlar að spila áfram Sport Ofurvaramaðurinn með ótrúlegt mark til að tryggja Aston Villa sigur Fótbolti Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Enski boltinn Snýr aftur heim í KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Magdeburg í úrslit fjórða árið í röð Bjarki Már í úrslit á kostnað Barcelona Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Lilja tognuð á ökkla og frá næsta mánuðinn Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Greið leið fyrir Bjarka, Ómar og Gísla í undanúrslit HM Elliði Snær frábær í sigri Gummersbach Bjarki með átta gegn Brössum Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Þorsteinn Leó fór hamförum „Varnarleikurinn var skelfilegur” FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Tíu marka sigur Íslands Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Sjá meira