Bíó og sjónvarp

Segir nýjasta þátt Game of Thrones alls ekki of dimman og að áhorfendur kunni ekki að stilla sjónvörpin sín

Birgir Olgeirsson skrifar
Stilla úr nýjasta þættinum.
Stilla úr nýjasta þættinum. HBO
Nýjasti þáttur Game of Thrones hefur vakið mikla athygli, ekki bara vegna framvindu sögunnar heldur vegna myndgæða þáttarins. Kvörtuðu margir áhorfendur yfir því á samfélagsmiðlum að þátturinn hefði verið helst til dimmur og hefðu því ekki náð að sjá allt sem gerðist í þættinum.

Sá sem fer fyrir kvikmyndatöku þáttarins heitir Fabian Wagner en hann hafði nokkuð einfalda útskýringu á vandamáli þessara áhorfenda.

„Að mörgu leyti snýst þetta um að fólk kann ekki að stilla sjónvarpið sitt almennilega,“ sagði Wagner í samtali við Wired UK. „Margir velja einnig að horfa á þáttinn á litlum skjám, á borð við iPad,“ segir Wagner og bætir við að það sé alls ekki rétta leiðin til að horfa á nýjasta þáttinn.

Wagner biður þó þá sem kvarta yfir þessu að hafa ekki áhyggjur þó þeir hafi ekki séð eitthvað sem þeir töldu sig eiga að sjá. „Allt sem við vildum sýna var sýnt.“

Bandaríski vefurinn TMZ ræðir einnig við Wagner og varpar fram þeirri vangaveltu að Wagner hafi horft á senur þáttarins í hárri upplausn í gegnum rándýrar myndavélar og myndvinnslutæki. Er Wagner spurður af TMZ hvernig hann getur raunverulega vitað að þátturinn hafi ekki verið of dimmur fyrir þá sem sátu heima í stofu og horfðu á hann í gegnum hefðbundin tæki?

„Ég veit að hann var það ekki því ég sá um kvikmyndatökuna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.