Lífið

Drakk frá mér alla ábyrgð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ingó opnar sig um upp á gátt í Einkalífinu.
Ingó opnar sig um upp á gátt í Einkalífinu. vísir/vilhelm
Ingólfur Þórarinsson hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins síðastliðinn fimmtán ár. Ingó er gestur vikunnar í Einkalífinu en í þættinum fer söngvarinn um víðan völl og kemur inn á það að hann hafi ekki drukkið áfengi í sjö mánuði.

„Maður hefur verið svona einu skrefi frá því að fara fram að brúninni með þetta,“ segir Ingólfur um drykkjuna sem hann hefur nú lagt á hilluna.

„Ég þurfti á ákveðnum tímapunkti að líta inn á við. Maður var ekkert að þróast. Þetta er stór hluti af tónlistarbransanum og hjá tónlistarmönnum er oft svolítið margir laugardagar. Ég gat sturtað í mig, farið á næsta gigg og síðan næsta gigg og ég var bara á útopnu. Svo fattaði maður að maður var að koma fram fjögur kvöld í viku og þetta var þá orðið sextán kvöld í mánuði sem maður er að sturta í sig einhverjum hugabreytandi efnum. Að lokum kemur samt alltaf mánudagur.“

Hann segist hafa verið algjörlega týndur í þessum heimi.

„Maður er kannski búinn að helda í sig fjórtán vodka Red Bull í einhverju giggi og heldur að maður sé Axl Rose en svo ert þú kannski ekki Axl Rose og bara fullur og kjánalegur. Nú þarf maður að horfast í augu við allt sem maður er að gera og taka ábyrgð á því, í stað þess að deyfa sig. Þegar ég tók þetta út var ákveðinn tómleiki og ég fór að skapa og búa til lög, sem ég hef alveg í mér.“

Hann segist í raun hafa með drykkju forðast allt sem væri einhver áskorun þegar hann var að fara koma fram.

„Ef þú ert að halda tónleika ert þú kannski stressaður hvort það mæti einhver, þú þarft að hafa hljóðkerfið í lagi, þú þarft að hafa bandið þitt klárt og vera búinn að æfa. Ég var að drekka mig frá þessu, drekka frá mér ábyrgðinni sem maður var að fara út í.“

Í þættinum ræðir Ingólfur einnig um Idol-tímann, athyglina og hvernig hann hefur tekist á við hana, um þá neikvæðu umræðu sem hefur stundum verið í kringum hann og hans skoðanir, um Brekkusönginn og hæfileika hans að ná alltaf upp stuði og margt fleira. Hér að ofan má sjá þáttinn en næstu þáttur í Einkalífinu fer í loftið 2.maí.


Tengdar fréttir

„Var kannski aðeins meðvirk með ástandinu“

Sjónvarpskonan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið á sjónvarpsskjáum landsmanna undanfarin ár og þá aðallega sem sjónvarpskokkur. Núna er Eva orðin dagskrágerðarmaður í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2.

„Hefði ekki viljað hafa neinn annan með mér í þessu“

Síðastliðinn áratug hefur Sólmundur Hólm Sólmundarson starfað sem skemmtikraftur og heillað þjóðina upp úr skónum. Árið 2017 greindist Sóli með eitlakrabbamein og við tók heljarinnar barátta við meinið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.