Lífið

Ekkert Pool-party í boði Katrínar

Jakob Bjarnar skrifar
Eftirgrennslan Vísis hefur leitt í ljós að ekki er um skjáborð tölvu Katrínar að ræða.
Eftirgrennslan Vísis hefur leitt í ljós að ekki er um skjáborð tölvu Katrínar að ræða.
Samkvæmt eftirgrennslan Vísis þá er það ekki svo að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sé sérlegur áhugamaður um „kraflyftingar“ og „PoolParty“. Því miður, myndi einhver segja.

Vonandi öllum boðið í sundlaugarpartý

Á fréttamannafundinum í Ráherrabústaðnum í gærkvöldi, þegar kjarasamningar voru kynntir, sló Katrín upp skyggnum á vegg til að skýra mál sitt. Áður en til þess kom mátti sjá skjáborð tölvunnar og þar var að finna allskyns möppur sem lýstu miklum íþróttaáhuga: „Júdó, Karate, Keila, Kraflyftingar og svo var mappa sem í tölvunni sem heitir „Lokahóf“ og „PoolParty“.

Eigandi tölvunnar hvar sjá má á skjáborði snyrtilega raðað upp merktum möppum sem lýsa yfir miklum áhuga á íþróttum og veisluhöldum hefur ekki fundist þrátt fyrir mikla leit Vísis.visir/vilhelm
Fréttamenn urðu forviða og ljósmyndari Vísis náði mynd af skjáborðinu eins og það blasti við. Þá hafa ýmsir netverjar velt fyrir sér þessari nýju og óvæntu hlið sem forsætisráðherra sýndi á sér við þetta tækifæri.

„Það skemmtilegasta við fréttamannafundinn í Ráðherrabústaðnum eru möppurnar á tölvu Katrínar. Spurningar sem vakna: Hvað er Hjólasrpettur? Hvers vegna var mér ekki boðið í sundlaugapartíið? Hver er að hætta og fær lokahóf?“ spyr Ingólfur Hermannsson á Facebook-síðu sinni. Færsla sem Gunnar Hrafn Jónsson fréttamaður deilir og bætir við:

„Það er ekki nóg með að samningar séu í höfn, það verður poolparty! Ég vona að öllum sé boðið,“ skrifar Gunnar Hrafn brosandi.

Varla í eigu Halldórs Benjamíns

En, ekki er það svo að forsætisráðherra sé svo íþrótta- og gleðisinnaður sem lesa má í merkingar á möppum skjáborðsins. Eftirgrennslan Vísis hefur leitt í ljós að ekki sé um tölvu Katrínar að ræða.

Eftir því sem næst verður komist, eftir leit innan forsætisráðuneytisins að eigandanum er tölvan líklega í eigu einhvers innan Samtaka atvinnulífsins. Sem lánaði tölvu sína undir það að keyra skýringarnar.

En fullyrt er í eyru blaðamanns, af þeim vettvangi að það sé algerlega útilokað að Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA eigi tölvu hvar í er mappa merkt júdó eða kraftlyftingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.