Lífið

Ná­grannar Ed Sheeran ó­sáttir vegna meintrar sund­laugar söngvarans

Atli Ísleifsson skrifar
Ed Sheeran er að koma sér vel fyrir í Suffolk.
Ed Sheeran er að koma sér vel fyrir í Suffolk. Getty
Breski söngvarinn Ed Sheeran hefur reitt einhverja nágranna sína til reiði eftir að hafa látið byggja meinta sundlaug á lóð sinni í Suffolk á Englandi.

Í umsókn söngvarans til skipulagsyfirvalda sagðist hann vera að búa til tjörn sem myndi þjóna fuglum og öðrum dýrum á svæðinu.

Í frétt Sky kemur fram að nágrannar Sheeran telji hins vegar ljóst að „tjörnin“ sé ætlað að gegna hlutverki sundlaugar enda sé nú búið að steypa fyrir tröppum ofan í tjörninni og koma fyrir byggju og smáhýsi.

Skjáskot úr myndbandi Sun
Sheeran lét reisa stórt hús fyrir um ári og hefur nú nýrnalaga tjörn verið komið fyrir á lóðinni. Eftir að búið hafði verið að koma tjörninni fyrir sótti söngvarinn fyrst um tilskilin leyfi þar sem hann hét því að tjörnin myndi styðja við bakið á öllu dýralífi. Leyfi fékkst með því skilyrði að hún yrði ekki notuð sem sundlaug.

Kenny og Carol Cattee, nágrannar Sheeran, hafa nú sent kvörtunarbréf til yfirvalda þar sem þeir segja framkvæmdina skaða umhverfið. Hafa þeir áhyggjur af því að framkvæmdin muni svo vinda upp á sig og leiða til frekari framkvæmda. Hjónin hafa áður kvartað til lögreglu vegna hávaða frá húsi Sheeran á síðasta ári.

Sheeran eða talsmenn hans hafa ekki viljað tjá sig um málið.

Sheeran mun halda tvenna tónleika á Laugardalsvelli í ágúst á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.