Fótbolti

Atletico mistókst að saxa á forskot Börsunga

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Griezmann og félagar áttu ekki góðan dag
Griezmann og félagar áttu ekki góðan dag vísir/getty
Atletico Madrid gerði Barcelona greiða með því að tapa fyrir Real Betis í spænsku La Liga deildinni í fótbolta í dag.

Barcelona var með sex stiga forskot fyrir leikinn í dag en Madrid átti leik til góða og hefði getað minnkað forskotið í þrjú stig.

Eina mark leiksins skoraði Sergio Canales úr vítaspyrnu á 64. mínútu og tryggði Betis þar með sigurinn.

Atletico átti þrettán tilraunir í átt að marki Betis en aðeins ein þeirra rataði á markrammann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×