Ætla sér að halda friðinn í Mið-Afríkulýðveldinu Atli Ísleifsson skrifar 8. febrúar 2019 12:44 Faustin-Archange Touadéra er forseti Mið-Afríkulýðveldins. Hann tók við embættinu árið 2015. Getty/Pacific Press
Sérstök sannleiks- og sáttanefnd verður mynduð í Mið-Afríkulýðveldinu. Þetta er liður í nýjum friðarsamningi stjórnvalda og uppreisnarhópa eftir margra ára átök í landinu. AFP greinir frá því að nefndinni skuli komið á laggirnar innan níutíu daga. Samningsaðilar hafa komið sér saman um að stofna sameiginlegar öryggissveitir sem skulu starfa næstu tvö árin til að halda friðinn í landinu. Friðarsamningurinn er afrakstur fulltrúa stjórnvalda og fjórtán vopnaðra hópa, en friðarviðleitanirnar nú eru áttunda tilraunin á síðustu sex árum að binda enda á borgarastríðið í landinu. Faustin-Archange Touadéra, forseti Mið-Afríkulýðveldins, og leiðtogar uppreisnarhópa undirrituðu samninginn í höfuðborginni Bangui á miðvikudaginn, en samningsviðræður hafa farið fram í Súdan. Enn eiga þó þrír samningsaðilar eftir að undirrita samninginn, en búist er við að það verði gert á leiðtogafundi Afríkubandalagsins í Eþíópíu um helgina. Þúsundir manna hafa látið lífið og á aðra milljón manna neyðst til að flýja heimili sín vegna óaldarinnar í landinu síðustu ár.
Mið-Afríkulýðveldið Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Innlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Innlent „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Innlent „Ég ætla ekki að vera föst á þessum Klausturbar“ Innlent Sigmundi vísað úr VMA eftir að hann krotaði á varning annarra flokka Innlent Fleiri fréttir Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Stofnandi World Wrestling Entertainment verður menntamálaráðherra Úkraínuforseti hvetur Vesturlönd til einbeittari stuðnings Ungar danskar konur taldar hafa látist af metanóleitrun Þúsund dagar af grimmd og eyðileggingu Börn Pelicot biðla til föður síns um að játa brot sín að fullu Stjúpsonur norska krónprinsins aftur handtekinn Hjálpargögnum stolið af tæplega hundrað flutningabifreiðum Tugur lýðræðissinna í Hong Kong dæmdur í fangelsi Segist ætla að siga hernum á farand- og flóttafólk Segir Biden „hella olíu á eldinn“ Verða fyrst í heimi til að skattleggja losun frá búfénaði Sjá meira