Martin magnaður í sigri Alba og tryggði liðinu sigurinn af vítalínunni Anton Ingi Leifsson skrifar 22. janúar 2019 20:43 Martin var frábær í kvöld. vísir/getty
Alba Berlín er með þrjá sigra í fyrstu fjórum leikjunum er liðið vann dramatískan sigur á Ryatas Vilnius, 77-75, er liðin áttust við fyrir framan rúmlega sjö þúsund áhorfendur í Berlín. Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en Vilnius leiddi með tveimur stigum eftir hann. Þeir keyrðu svo yfir heimamenn í öðrum leikhluta og leiddu með átján stigum í hálfleik, 57-39. Í síðari hálfleik var allt annað að sjá lið Berlínar og Martin var funheitur í þriðja leikhluta. Hann negldi niður þremur þristum í þriðja leikhluta og sá til þess að munurinn var fjögur stig fyrir lokaleikhlutann, 70-64, Vilnius í vil. Síðasti leikhlutinn var afar spennandi. Er rúm mínúta var eftir af leiknum voru heimamenn í Berlín fjórum stigum yfir en gestirnir svöruðu þá með fimm stigum í röð. Brotið var á Martini er nokkrar sekúndur var eftir af leiknum og fór hann á línuna og skoraði úr þeim vítum. Hann tryggði því Alba tveggja stiga sigur, 77-75. Martin átti frábæran leik. Hann skoraði 25 stig og var stigahæsti leikmaður vallarins. Að auki tók hann tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hann var framlagshæsti leikmaður vallarins. Eftir sigurinn er Alba Berlín með þrjá sigra í fjórum leikjum í riðlinum en Vilnius hefur tapað þremur af fyrstu fjórum leikjunum í riðlinum. Næst síðasta umferðin í 16-liða úrslitunum, sem eru leikin í fjórum riðlum, fer fram í næstu viku.
Körfubolti Mest lesið „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Tap hjá Sverri í Aþenuslagnum Fótbolti Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Handbolti „Gleymist að við tókum líka Kjarnafæðisbikarinn og getum unnið þrefalt“ Sport Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Sjá meira