Skoðun

Að taka afstöðu með náttúrunni

Stefán Már Gunnlaugsson skrifar
Í grein í Fréttablaðinu sem birtist þann 9. janúar eftir Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfismálaráðherra fer hann yfir þau málefni sem að hans mati eru efst á baugi á nýju ári. Nefnir hann þar sérstaklega friðlýsingar, stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og gegn plastmengun. Þetta eru þörf og góð mál og almenn sátt er um þau, þó mörgum þyki meira sagt en gert. Það sem vekur athygli er að umhverfismálaráðherra sér ekki ástæðu til þess að nefna stærstu ógnina sem nú steðjar að íslenskri náttúru og lífríki hennar: stóriðjulaxeldi í opnum sjókvíum með frjóan norskan lax.

Þögn og afstöðuleysi ráðherrans til sjókvíaeldis er hrópandi, líkist afneitun eða flótta. Sjókvíaeldið hefur stóraukist á undanförnum árum og áætlanir um risaaukningu í undirbúningi. Erfðanefnd landbúnaðarins komst að þeirri niðurstöðu að eldi á frjóum laxi í sjókvíum geti valdið óafturkræfum breytingum á erfðasamsetningu íslenskra laxastofna og ráðleggur stöðvun á útgáfu leyfa. Þrátt fyrir fögur fyrirheit, þá verða mannleg mistök og sjókvíarnar þola illa íslenskar aðstæður, eldislax sleppur og gengur upp í laxveiðiár nær og fjær frá kvíunum og veldur erfðablöndun við íslenskan villtan lax. Þá hefur eiturefnum verið sleppt í kvíarnar til að drepa lúsina með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir viðkvæmt lífríki fjarðanna. Svar sjókvíaeldisins er að horfast ekki í augu við þau umhverfisvandamál sem eldinu fylgja heldur halda blákalt fram að eldið sé umhverfisvænt.

Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um fiskeldi og nær allar breytingarnar miða að því að auðvelda starfsemi og vöxt laxeldis í opnum sjókvíum. Í lögunum er dregið úr bæði kröfum til eldisins og vægi vísindalegrar ráðgjafar og áhættumats Hafrannsóknastofnunar. Laxeldi í opnum sjókvíum er gömul og úrelt aðferð og hefur valdið miklum skaða á skömmum tíma eins og reynslan staðfestir alls staðar þar sem það er stundað. Erlendis hafa þegar verið þróaðar nýjar og umhverfisvænni aðferðir, en á sama tíma erum við á Íslandi að festa úreltar aðferðir í sessi og draga úr nauðsynlegu aðhaldi. Lög um fiskeldi þarf að endurskoða frá grunni og marka þá stefnu að hérlendis verði umhverfis­vænt landeldi eða eldi í lokuðum kvíum með geldan lax.

Miklar vonir voru bundnar við nýjan umhverfisráðherra sem kallaður var til þjónustu í ríkisstjórn úr samtökum náttúruverndar, þar sem hann hafði orð á sér fyrir málafylgju í þágu umhverfis og náttúruverndar. Afstaða og framganga Guðmundar Inga umhverfisráðherra varðandi opna sjókvíaeldið er því prófsteinn á trúverðugleika hans eða hvort pólitísku eftirmælin verði að á hans vakt hafi villta laxastofninum verið fórnað fyrir norskt fiskeldi á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×