Orkumálastjóri ESB vill verða forseti Slóvakíu Atli Ísleifsson skrifar 18. janúar 2019 10:51 Slóvakinn Maros Sefcovic. Getty/
Slóvakinn Maros Sefcovic, framkvæmdastjóri orkumála innan Evrópusambandsins, hefur boðið sig fram sem forseti í heimalandinu. Forsetakosningar fara fram í Slóvakíu þann 16. mars næstkomandi. Í frétt Reuters er haft eftir hinum 52 ára Sefcovic að hann njóti stuðnings jafnaðarmannaflokksins Smer, sem á sæti í ríkisstjórn. Sefcovic hefur verið fulltrúi Slóvakíu í framkvæmdastjórn ESB frá árinu 2009, en öll aðildarríki eiga einn fulltrúa þar. Þar áður var hann sendiherra Slóvakíu gagnvart ESB.Sóttist eftir að verða arftaki Juncker Fyrr í haust bauð Sefcovic sig fram til að verða frambjóðandi þinghóps Jafnaðarmanna á Evrópuþinginu til að verða næsti forseti framkvæmdastjórnar ESB. Jean Claude Juncker hyggst láta af því embætti að Evrópuþingskosningunum loknum sem fram fara í maí. Sefcovic dró hins vegar framboð sitt til baka og lýsti yfir stuðningi við starfsbróður sinn innan framkvæmdastjórnarinnar, Hollendinginn Frans Timmermans. Andrej Kiska, núverandi forseti Slóvakíu, hyggst ekki bjóða sig fram til endurkjörs. Kiska tók við embættinu árið 2014.
Evrópusambandið Slóvakía Tengdar fréttir Sefcovic styður Timmermans í vali á Jafnaðarmanna á mögulegum arftaka Juncker Slóvakinn Maros Sefcovic, einn varaforseta framkvæmdastjórnar ESB, hefur lýst því yfir að hann sækist ekki lengur eftir því að verða næsti forseti framkvæmdastjórnar ESB. 6. nóvember 2018 11:18 Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Fleiri fréttir Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Sjá meira
Sefcovic styður Timmermans í vali á Jafnaðarmanna á mögulegum arftaka Juncker Slóvakinn Maros Sefcovic, einn varaforseta framkvæmdastjórnar ESB, hefur lýst því yfir að hann sækist ekki lengur eftir því að verða næsti forseti framkvæmdastjórnar ESB. 6. nóvember 2018 11:18