Nýttu ekki forkaupsrétt að hlut í HS Orku Hörður Ægisson skrifar 19. desember 2018 08:15 Davíð Rúdólfsson, stjórnarformaður Jarðvarma.
Stjórn Jarðvarma, samlagshlutafélag fjórtan lífeyrissjóða sem eiga þriðjungshlut í HS Orku, ákvað að nýta sér ekki forkaupsrétt sinn að 12,7 prósenta hlut í orkufyrirtækinu, samkvæmt heimildum Markaðarins. Hafði Jarðvarmi frest til 5. desember síðastliðinn til að stíga inn í sölu fagfjárfestasjóðsins ORK á hlutnum til svissneska fjárfestingafélagsins DC Renewable Energy og eignast þannig samtals um 46 prósenta hlut í HS Orku. Gengið var frá kaupum DC Renewable Energy, sem er í eigu Bretans Edmunds Truell og hefur lengi unnið að því að koma á sæstreng á milli Íslands og Bretlands, í byrjun október. Kaupverðið, eins og áður hefur verið upplýst um í Markaðnum, getur numið allt að rúmlega níu milljörðum króna. Hluti greiðslunnar, eða um einn milljarður, er árangurstengdur afkomu HS Orku. Stærsti hluthafi HS Orku, kanadíska orkufyrirtækið Innergex, kannar nú sölu á tæplega 54 prósenta hlut sínum í fyrirtækinu. Ráðgjafar Innergex við söluferlið eru kanadíski bankinn Bank of Montreal og íslenska ráðgjafarfyrirtækið Stöplar Advisory.–hae
Birtist í Fréttablaðinu Lífeyrissjóðir Mest lesið Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Efling hafi líklega sett Íslandsmet í óhróðri Bogi í Icelandair kaupir einbýlishús af Pétri í Eykt Fyrrverandi þingmenn vilja verða forstjórar Kríu Sjá meira