Marvel dælir út stiklunum Samúel Karl Ólason skrifar 5. desember 2018 11:15 Captain Marvel í stuði.
Marvel birti í gær aðra stiklu myndarinnar um Carol Danvers eða Captain Marvel, sem frumsýnd verður í mars. Þá segja fjölmiðlar ytra að stiklan fyrir næstu Avengers-mynd verði sýnd á föstudaginn. Upprunalega á að hafa staðið til að sýna stikluna fyrir Avengers 4 í dag en því hafi verið frestað vegna jarðarfarar George Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Þá lítur út fyrir að fyrsta stikla Spider-Man: Far From Home verði sýnd á laugardaginn. Byrjum þó á Captain Marvel og vörum við mildum spennuspillum hér að neðan. Sérstaklega hvað varðar Avengers Infinity War. Í stiklunni hér að neðan má sjá að hluta til hvernig Carol Danvers varð að Captain Marvel og „ungan“ Nick Fury, þar sem myndin á að gera á fyrri hluta tíunda áratugar síðustu aldar. Forsvarsmenn Marvel myndanna hjá Disney hafa sagt að Captain Marvel sé öflugasta ofurhetja kvikmyndaheimsins og miðað við stikluna, og þá sérstaklega enda hennar, er auðvelt að trúa því.Avengers 4 verður frumsýnd í maí og mun sú mynd loka þriðja kafla kvikmyndasöguheims Marvel, sem hófst með útgáfu Iron Man árið 2008. Avengers Infinity War var frumsýnd í fyrra og án þess að skemma eitthvað fyrir þeim, væntanlega fáu, sem hafa ekki séð hana, þá endaði hún ekki vel fyrir hetjurnar. Sú mynd endaði á því að Fury tók upp símboða og notaði hann til að senda Captain Marvel skilaboð. Því þykir nokkuð ljóst að hún verði í Avengers 4. Þær hetjur sem eftir eru þurfa að taka höndum saman og reyna að ná aftur þeim helmingi allra íbúa alheimsins sem Thanos myrti. Gífurleg leynd hefur verið yfir söguþræði Avengers 4 en hún var tekin upp samhliða Infinity War og stjörnur myndanna segjast í rauninni ekki vita hvernig þetta fari allt saman. Lekar og ljósmyndir af setti gefa þó í skyn að tímaflakk muni koma að sögu. Það er þó ekki hægt að gera ráð fyrir því að fyrsta stiklan muni svara mörgum spurningum. Eins og haldið er fram á Screen Rant er líklegast að hún verði notuð til að rifja upp hver staða kvikmyndaheimsins er í kjölfar Infinity War.Hvernig er dauð ofurhetja markaðssett? Það er stóra spurningin varðandi stiklu nýju Spider-Man myndarinnar sem sýna á á laugardaginn. Væntanlega. Það verður spennandi að sjá hvernig stiklan verður með tilliti til þess að Peter Parker dó í enda Infinity War. Auðvitað gerir enginn ráð fyrir því að hann muni vera dauður áfram og Far From Home verður frumsýnd á eftir Avengers 4, þannig að Spider-Man verður örugglega snúinn aftur. Hvernig markaðssetur þú samt dauða ofurhetju án þess að skemma fyrir Avengers 4? Marvel mun væntanlega ekki sýna neitt úr myndinni sjálfri sem fjallar víst um það að Peter Parker, og þá einnig Spider-Man, fer til Evrópu að berjast við Mysterio. Það verður spennandi að sjá.
Bíó og sjónvarp Disney Tengdar fréttir Fyrsta stikla Captain Marvel Fyrsta stikla kvikmyndarinnar Captain Marvel, þa sem leikkonan Brie Larson leikur Carol Danvers (Captain Marvel) hefur verið birt. 18. september 2018 13:18 Mest lesið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Hundleið á að bíða eftir karlmanni og greip í taumana Lífið Anora sigurvegari á Óskarnum Bíó og sjónvarp Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið Tróð Bjarna og fjölskyldu í Toyota Yaris Lífið Auddi og Steindi í BDSM Lífið Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Lífið Stjörnulífið: Kærleiksríkir menn á Bessastöðum Lífið Tengdist Hopkins í gegnum tólf spora ferlið Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Fleiri fréttir Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Snerting, Ljósbrot og Ljósvíkingar bítast um Edduna Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Næsti Dumbledore fundinn Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Sjá meira
Fyrsta stikla Captain Marvel Fyrsta stikla kvikmyndarinnar Captain Marvel, þa sem leikkonan Brie Larson leikur Carol Danvers (Captain Marvel) hefur verið birt. 18. september 2018 13:18
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein