Skoðun

Taumlaus óbeit

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Íslenskir stjórnmálamenn telja sig ekki alltaf þurfa að taka yfirvegaða afstöðu til einstakra mála. Sumir þykjast vita fyrirfram hvað er á ferð. Brúnaþungir og ábúðarfullir fara þeir umsvifalaust að gaspra út í loftið um hvað muni bíða þjóðarinnar verði málið sem þeir leggjast gegn samþykkt á þingi.

Gagnrýnin á þriðja orkupakka Evrópusambandsins hefur verið á þennan veg. Svo harðvítugar deilur eru einkennilegar í máli þar sem auðvelt ætti að vera að kynna sér staðreyndir. Margir hafa alls engan áhuga á því og stunda upphrópanir um að verið sé að afsala sér forræði yfir auðlindinni og telja fullveldisafsal blasa við. Ekki kemur á óvart að þeir stjórnmálamenn sem hæst tala á þessum nótum tilheyra Miðflokki, Framsóknarflokki og afturhalds­samasta armi Sjálfstæðisflokksins. Þeir virðast fyrst og fremst reknir áfram af blindri andúð á Evrópusambandinu og hafa takmarkaðan áhuga á að kynna sér staðreyndir málsins. Sjálfir telja þeir sig búa yfir fyrirfram vitneskju sem kallar ekki á neinar efasemdir í huga þeirra.

Í húsi stærsta flokks þjóðarinnar, Sjálfstæðisflokksins, eru þó blessunarlega margar vistarverur og í sumum þeirra er meira um skynsemi en í öðrum. Á dögunum steig fram Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra iðnaðarmála, og sagði málflutning andstæðinga þriðja orkupakkans beinlínis fjarstæðukenndan. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur tilkynnt að vegna gagnrýnisradda ætli ríkisstjórnin að fresta því fram á vor að leggja fram frumvarp um þriðja orkupakkann. Hugsanlega er þetta gert í von um að hinir herskáu andstæðingar róist og geti rætt málið á vitsmunalegum nótum, og jafnvel tekið mark á orðum færustu sérfræðinga. Ekkert bendir þó sérstaklega til þess að svo verði.

Hörðustu andstæðingar þriðja orkupakkans hafa lítið annað með sér í málflutningi sínum en taumlausa óbeit á Evrópusambandinu og EES-samningnum. Þeim er nákvæmlega sama um álit þeirra sem hafa kynnt sér málið og taka ekki mark á niðurstöðum sérfræðinga, sem koma úr ólíkum áttum, og segja hinn nýja orkupakka ekki fela í sér eðlisbreytingu frá fyrri orkupökkum.

Stjórnmálamenn geta haft alls konar skoðanir á Evrópusambandinu og hinum ýmsu löggjöfum þess, en þeir mega ekki missa slíka stjórn á sér að þeir sjái þar fjandann sjálfan í hverju horni og líti á EES-samninginn sem svikaplagg sem umsvifalaust ber að segja sig frá. EES-samningurinn hefur dugað þjóðinni ákaflega vel og það er ástæða til að standa vörð um hann.

Þegar umræða um þriðja orkupakkann hefst af fullum þunga næsta vor verða þeir þingmenn stjórnarandstöðu sem búa yfir ábyrgðarkennd – sem þeir gera ekki allir – að styðja málið. Það kemur í hlut þeirra að taka sér stöðu við hlið ríkisstjórnarinnar og mótmæla málflutningi afturhaldsafla sem kæra sig ekki um að framfylgja alþjóðasamningum.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×