Erfið staða Liverpool eftir tap

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Henderson og félagar áttu erfiðan dag á skrifstofunni
Henderson og félagar áttu erfiðan dag á skrifstofunni vísir/getty
Paris Saint-German vann mikilvægan sigur í baráttunni um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu þegar Liverpool mætti í heimsókn til Frakklands.

Fyrir leiki kvöldsins hefði sigur á PSG getað dugað Liverpool til að tryggja sig upp úr riðlinum ef úrslit úr hinum leik riðilsins hefðu verið þeim hliðholl. Lærisveinar Jurgen Klopp eru hins vegar í erfiðum málum eftir 2-1 tap fyrir Parísarliðinu.

Fyrsta mark leiksins kom á 13. mínútu þegar Juan Bernat skoraði eftir undirbúning frá ungstirninu Kylian Mbappe. Heimamenn höfðu verið sterkari aðilinn í leiknum og uppskáru með marki.

PSG var með tökin á leiknum og voru líklegri til þess að bæta við en gestirnir að jafna. Það kom upp á daginn, Neymar tvöfaldaði forystu PSG þegar hann setti frákstið af skoti Edinson Cavani framhjá Alisson og í marknetið.

Á síðustu augnablikum fyrri hálfleiks fékk Liverpool vítaspyrnu. Angel di Maria fer í mjög klaufalega tæklingu á Sadio Mane, er langt frá því að taka boltann og vítaspyrna réttilega dæmd. James Milner steig á punktinn og skoraði örugglega. Liverpool fékk senda líflínu rétt áður en liðin gengu til búningsherbergja.

Bæði lið voru hættuleg fram á við í seinni hálfleik og varnarleikur beggja liða ekki upp á marga fiska. Mohamed Salah var nálægt því að jafna leikinn fyrir Liverpool og PSG hefði mögulega átt að fá vítaspyrnu þegar Virgil van Dijk virtist hafa brotið á sér en dómari leiksins leyfði varnarmanninum að njóta vafans.

Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 2-1. Vítaspyrna James Milner var eina skot Liverpool á markrammann í leiknum.

Í hinum leik riðilsins vann Napólí 3-0 sigur á Rauðu stjörnunni. Napólí og Liverpool mætast í lokaleik riðilsins og þar þarf Liverpool að vinna til þess að komast áfram. 1-0 sigur dugar Liverpool en skori Napólí á Anfield þurfa þeir að vinna með tveggja marka mun. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira