Fótbolti

Aðhlátursefni eftir að hafa látið raka andlit Ramos á hnakkann | Mynd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Væri gaman að fá álit Ramos á þessu uppátæki.
Væri gaman að fá álit Ramos á þessu uppátæki. vísir/getty
Það er mikið hlegið að æstum aðdáanda Sergio Ramos í dag eftir að sá lét raka andlit Ramos í hnakkann á sér. Það kom ekki vel út.

Viðkomandi ætlaði sér heldur betur að slá í gegn með nýju klippingunni. Hann gerði það svo sannarlega en líklega ekki á þann hátt sem hann bjóst við.





Þetta var klárlega mjög metnaðarfullt verkefni sem einfaldlega gekk ekki upp. A+ fyrir metnað samt. Margir sem hafa gert grín að þessari klippingu segja að þetta líkist frekar Wilson úr myndinni Cast Away frekar en Ramos. Það er nokkuð til í því.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×