Lífið

Ellen kom tælensku drengjunum tólf á óvart: „Þetta er besta lið heims“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Zlatan er uppáhalds leikmaður þeirra allra.
Zlatan er uppáhalds leikmaður þeirra allra.
Heimsbyggðin öll fylgdist með þegar fréttir fóru að berast í síðari hluta júnímánaðar um að tólf ungra drengja í knattspyrnuliðinu Wild Boars væri saknað auk þjálfara liðsins. Við tóku gríðarlega umfangsmiklar aðgerðir sem sýnt var frá á sjónvarpsstöðvum og fréttasíðum um víða veröld.

Drengirnir tólf voru fastir í þröngum og dimmum helli, fullum af vatni, í Chiang Rai héraði Tælands. Björgunaraðgerðir tóku yfir eina viku og komst hópurinn heill á húfi út úr hellinum.

Spjallþáttakonan Ellen DeGeneres bauð drengjunum tólf og þjálfaranum í heimsókn í þátt sinn í vikunni og kom þeim heldur betur á óvart.

Ellen gat rætt við drengina í gegnum túlk og lýstu þeir atburðarrásinni vel. Þeir sögðust ekki hafa verið hræddir og höfðu alltaf von um að þeim yrði bjargað að lokum. Þjálfari þeirra sagði þeim að hugleiða mikið í hellinum og skipti það sköpum.

Ellen kom drengjunum á óvart með því að bjóða átrúnaðargoði þeirra í heimsókn í þáttinn og fengu þeir allir að hitta knattspyrnumanninn Zlatan Ibrahimović í þættinum. „Þetta lið er besta lið heims. Þeir sýndu mikinn liðsanda og gáfust aldrei upp,“ sagði Svíinn Zlatan Ibrahimović í þættinum.

Viðbrögð þeirra voru einstök eins og sjá má hér að neðan en þar má einnig sjá viðtalið við drengina í heild sinni. Allir eiga þeir það sameiginlegt að vilja verða atvinnumenn í knattspyrnu til að geta séð fyrir fjölskyldu sinni.


Tengdar fréttir

Wild Boars boðið á Gothia Cup

Mótshaldarar stærsta knattspyrnumóts unglinga í heimi hafa ákveðið að bjóða taílensku fótboltastrákunum að taka þátt á næsta ári, án endurgjalds.

Fundu lyktina af strákunum í hellinum

Það var lyktin sem fyrst gaf bresku köfurunum Rick Stanton og John Volanthen til kynna að leit þeirra í þröngum og dimmum helli, fullum af vatni, í Chiang Rai héraði Tælands hefði borið árangur.

Fótboltastrákarnir útskrifast á fimmtudag

Taílensku fótboltastrákarnir sem festust ásamt helli með þjálfara sínum hafa frá björgun verið á Chiang Rai sjúkrahúsinu. Stefnt er að því að þeir yfirgefi það á fimmtudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.