Skoðun

Loftslag, land og mannauður – skorað á umhverfisráðherra

Ólafur Arnalds skrifar
Loftslagsbreytingar eru alvarlegasta umhverfisvá samtímans ásamt hnignun auðlinda jarðar. Talið er að um fjórðungur losunar gróðurhúsalofttegunda tengist nýtingu landsins og hnignun vistkerfa. Á fáum svæðum jarðar finnast vistkerfi í jafn slæmu ástandi og á Íslandi. Endurheimt vistkerfa er því meðal mikilvægustu aðgerða á sviði loftslagsmála sem hægt er að að grípa til hérlendis, svo sem landgræðsla og hvers kyns vistheimt, skógrækt og endurheimt votlendis. Endurheimtin bætir jafnframt lífsviðurværi og tengist flestum af umhverfismarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Mikilvægt er að aðgerðir í þágu loftslagsmála byggi á faglegri þekkingu. Mesta innspýtingin til eflingar mannauðs á sviði gróðurverndar, landgræðslu og landnýtingar kom í kjölfar „Þjóðargjafarinnar“ svokölluðu árið 1974, en stór hluti best menntaða fólksins á þessum sviðum þróaði sína fagþekkingu í erlendum háskólum í kjölfar hennar. Þessi mannauður er einmitt eitt það verðmætasta sem „Þjóðargjöfin“ gat af sér þegar litið er til lengri tíma. Nú grisjast óðum sá hópur sökum aldurs.

Annað mikilvægt skref til eflingar mannauðs var tekið þegar ríkisstjórnin hóf átaksverkefni til að binda kolefni með landgræðslu og skógrækt fyrir síðustu aldamót, en þá var hluti fjárins helgaður rannsóknum. Sú ákvörðun kostaði þó fortölur og mikil átök, enda skyldi fjármagninu vera varið í framkvæmdir, en „ekkert kjaftæði“ eins og einn þingmaðurinn orðaði það á sínum tíma. En skynsemin náði yfirhöndinni, rannsóknir á kolefnisbindingu í jarðvegi voru hafnar, sem skilaði heldur betur sínu – án þeirra rannsókna sem þá hófust væri landgræðsla t.d. ekki viðurkennd bindingarleið til að vega upp á móti losun gróðurhúsalofttegunda. Úr varð rannsóknahópur og þekking sem gat fóstrað núverandi starf á þessu sviði.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja umtalsverða fjármuni til að binda kolefni í vistkerfum og til að endurheimta auð þeirra um leið, m.a. með landgræðslu og vistheimt, endurheimt votlendis og skógrækt, samkvæmt metnaðarfullri „Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum 2018-2030“. Þetta er afar mikilvæg, nauðsynleg og ánægjuleg þróun. En það er jafnframt grundvallaratriði að byggja upp mannauð á sama tíma, innviði til rannsókna og þekkingu á þeim ferlum sem liggja að baki. Framkvæmdagleðin er okkur eðlislæg en hún getur borið okkur ofurliði. „Bókhald“ um bindinguna og vöktun nægir ekki til langframa, bókhaldið verður að standast stranga rýni erlendra vísindamanna og endurskoðun á alþjóðavettvangi. Þá þarf að gæta þess að framkvæmdir, eftirlit, bókhald og grunnrannsóknir séu ekki allar á sömu hendi, það væri beinlínis slæm stjórnsýsla.

Trauðla verður séð af þeim tillögum sem nú liggja fyrir að vel sé hugað að rannsóknum utan vöktunarverkefna. Samt er það einmitt öflugt rannsóknastarf sem rennir stoðum undir árangurinn og getur um leið skapað alveg ný tækifæri á sviði kolefnisbindingar og vistheimtar, eins og þær leiðir sem nú eru opnar eru dæmi um. Þær byggja á vísindarannsóknum sem spruttu upp úr verkefnum sem þessum.

Skortur á grunnrannsóknum og mannauði í tengslum við þetta átak yrði afskaplega sorgleg niðurstaða. Því skora ég á umhverfisráðherra að huga vel að mannauði og þekkingu við útfærslu á framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Það gæti hæglega orðið verðmætasta fjárfestingin þegar litið er til lengri tíma.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×