Lífið

Tæplega þrjátíu þúsund miðar fara í sölu á Ed Sheeran

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sheeran stígur á sviðið á Laugardalsvelli þann 10. ágúst 2019.
Sheeran stígur á sviðið á Laugardalsvelli þann 10. ágúst 2019.
„Við höfum verið að vinna í þessu í tvö ár og undanfarið ár hefur þetta verið mikil pappírsvinna,“ segir Ísleifur Þórhallsson hjá Senu Live en fyrirtækið tilkynnti í morgun að breski tónlistamaðurinn Ed Sheeran komi fram á tónleikum á Laugardalsvelli 10. ágúst næsta sumar.

„Við þurftum sjá hvort að sviðið komist fyrir og allskonar smáatriði varðandi víra og græjur sem hefur verið mikil vinna. Hann er að taka 24 tónleika á þessum túr og það er mikill heiður fyrir okkur að fá að vera með í þessu. Hann kemur frá Búdapest yfir til Reykjavíkur og síðan fer hann heim til Englands.“

Þrjátíu þúsund miðar

Samkvæmt heimildum Vísis fara tæplega þrjátíu þúsund miðar í sölu og verða þeir allir seldir á sama tíma. Líklegt verður að teljast að uppselt verði á tónleikana þar sem Sheeran heldur nánast aldrei tónleika án þess að selja upp. Samkvæmt sömu heimildum verða 10 þúsund miðar í sæti og um tuttugu þúsund miðar í stæði.

Sjá einnig: Ed Sheeran heldur tónleika á Laugardalsvelli næsta sumar

„Við munum selja alla miðana í einu og þetta verður stafræn biðröð. Það er ekkert aðalatriðið fyrir okkur að selja þá alla um leið, við viljum gera þetta rétt og þessi stafræna röð mun bara hleypa fólki inn í réttri röð.“

Ísleifur segir að Ed Sheeran sé stærsti tónlistamaður samtímans, punktur.



Alltaf uppselt

„Það er alltaf uppselt á alla hans tónleika og hann er söluhæsti tónlistarmaður sögunnar hvað varðar tónleikahald. Það er ekki í kortunum eins og staðan er núna að við getum boðið upp á aukatónleika.“

Tónleikafyrirtækið AEG vinnur verkefnið með Senu Live en fyrirtækið kom einnig að tvennum tónleikum Justin Bieber hér á landi árið 2016. Fyrirtækið er eitt stærsta í heiminum í þessum bransa. 

„Fyrir okkur að vera komin í svona náið samstarf við svona risafyrirtæki er bara magnað og að Ísland nái inn dagsetningu í þessum 24 tónleika túr er einnig ótrúlegt. Hann vill bara koma til Íslands.“

Miðasalan hefst 27. september á slaginu níu á tix.is/ED

Í boði verða fjögur verðsvæði:

– Standandi: 15.990 kr

– Sitjandi C: 19.990 kr

– Sitjandi B: 24.990 kr

– Sitjandi A: 29.990 kr.

-


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.