Ætla ekki að draga tilnefningu Kavanaugh til baka Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar 16. september 2018 22:47 Bandaríkjaforseti ásamt Brett Kavanaugh. Vísir/Ap
Repúblikanar ætla að halda því til streitu að kosið verði um hæfi Brett Kavanaugh hæstaréttardómaraefni Donalds Trump Bandaríkjaforseta til að gegna embætti dómara við Hæstarétt. Greiða á atkvæði um skipan hans á fimmtudaginn. Kona steig nýverið fram undir nafni og lýsti því sem hún segir árás Kavanaugh í viðtali við Washington Post. Hún heitir Christine Blasey Ford og er prófessor í sálfræði í Kaliforníu. Árásin segir hún að hafi átt sér stað í unglingasamkvæmi í Maryland-ríki snemma á 9. áratug síðustu aldar. Í frétt Politico um málið kemur fram að tilnefning hans í dómaraembætti verði alls ekki dregin til baka. Þvert á móti kemur fram að repúblikanar muni halda henni til streitu og gefa ekkert eftir. Demókratar í dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings höfðu vakið athygli á ásökunum um að Kavanaugh hefði brotið á ónafngreindri stúlku þegar hann var á framhaldsskólaaldri. Vísuðu þeir málinu til alríkislögreglunnar FBI til rannsóknar.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Fleiri fréttir Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Sjá meira