Lífið

Milljón og Pétur Jóhann hleypur aftur á bak

Benedikt Bóas skrifar
Pétur Jóhann er í dúndurformi og tilbúinn í slaginn. Hann tók meira að segja hlaupagallann með sér í sumarbústað um helgina. Í fyrra söfnuðust 118 milljónir til 152 góðgerðarfélaga en Pétur hleypur fyrir Bumbulóní. Mynd/Natan Bjarnason
Pétur Jóhann er í dúndurformi og tilbúinn í slaginn. Hann tók meira að segja hlaupagallann með sér í sumarbústað um helgina. Í fyrra söfnuðust 118 milljónir til 152 góðgerðarfélaga en Pétur hleypur fyrir Bumbulóní. Mynd/Natan Bjarnason
„Ég hef ekki hlaupið mikið aftur á bak. Ég hef alveg gert það en ekki tíu kílómetra,“ segir Pétur Jóhann Sigfússon sem ætlar að hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu aftur á bak ef hann nær að safna milljón krónum fyrir góðgerðarfélagið Bumbulóní.

„Það þarf bara að kýla á þetta og athuga hvað gerist, ef ég á að vera hreinskilinn þá fannst mér eitthvað fyndið við að prófa þetta.“

Tilgangur og markmið Bumbuloní er að styrkja fjölskyldur langveikra barna fyrir jólin ár hvert. Í ár verður styrkurinn veittur í fjórða sinn en þrjár fjölskyldur fengu styrk árið 2015 og árið 2016 og átta fjölskyldur árið 2017.

Keppendur arka af stað. Allir áfram og enginn aftur á bak. Pétur Jóhann verður trúlega sá fyrsti sem skokkar 10 kílómetrana aftur á bak.fréttablaðið/Arnaldur
Félagið er stofnað til minningar um Björgvin Arnar sem lést langt fyrir aldur fram úr sjaldgæfum sjúkdómi árið 2013, þá sex ára gamall.

Pétur og kærasta hans, Sigrún, kynntust Ásdísi stofnanda Bumbulóní í fríi erlendis. „Mig langaði að fá eitthvert fútt í þetta og mér fannst þessi tala, milljón, svolítið heillandi.

Og að hlaupa aftur á bak í einhverja sex klukkutíma – það gefur þessu gildi,“ segir hann.

Pétur segist vera í ágætu formi, ekki arfaslöku eins og oft áður. Orð að sönnu en þeir sem sáu grillþáttinn þeirra Sveppa tóku eftir að Pétur var í sumarformi en hann hefur verið að fara ásamt Sigrúnu í Hreyfingu í Glæsibæ. „Ég er í betra formi en ég á að mér. Ég er búinn að fara frá áramótum þegar færi gefst með Sigrúnu. Við höfum verið að skapa okkur tíma til að hreyfa okkur. Ég hef ekki fílað mig vel í líkams­ræktar­stöðvum en ég hef náð að hanga þegar hún er með mér.

Hún rífur mig áfram. Hún er úr Keflavík og tekur enga fanga,“ segir hann glaðbeittur sem fyrr tilbúinn í að hlaupa 10 kílómetrana aftur á bak eða áfram.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.