Fótbolti

Sjáðu Lionel Messi leika sér með hundinum sínum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi og hundurinn.
Lionel Messi og hundurinn. Mynd/Twitter
Argentínski knattspyrnusnillingurinn Lionel Messi er ennþá í fríi eftir langt tímabil með Barcelona og svo í ofanálag heimsmeistarakeppnina í Rússlandi.

Heimsmeistarakeppnin tók örugglega sinn toll þar sem argentínska landsliðið féll úr í sextán liða úrslitum á móti verðandi heimsmeisturum Frakka.

Messi náði aðeins að skora eitt mark í keppninni og náði sem dæmi ekki að skora framhjá Hannesi Þór Halldórssyni í íslenska markinu. Hannes varði meðal annars vítaspyrnu frá Messi eins og við Íslendingar munum seint gleyma.

Messi slakar nú á með fjölskyldu sinni í sumarfríi á meðan hann safnar kröftum fyrir komandi tímabil með Barcelona.

Nú þarf hann ekki lengur að keppa um sviðsljósið á Spáni við Cristiano Ronaldo eftir að Real Madrid seldi Portúgalann til Juventus.

Messi er þó ekki alveg laus við myndavélarnar í fríinu. Það náðist nefnilega stórskemmtilegt myndband af því að þegar hann var að leika sér við hundinn sinn út í garði.

Hundurinn hans Messi er ekki af minni gerðinni eins og sjá má hér í myndbandinu fyrir neðan þegar hundurinn reynir að ná boltanum af Messi. Það má heyra í börnunum hans Messi hvetja þá áfram, hvort þeir eru að hvetja pabba eða hundinn, fylgir þó ekki sögunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×