Sonur Tinu Turner fannst látinn Atli Ísleifsson skrifar 4. júlí 2018 08:23 Tina Turner eignaðist Craig Raymond Turner þegar hún var átján ára gömul. Vísir/Getty
Elsti sonur bandarísku söngkonunnar Tinu Turner, Craig Raymond Turner, er látinn eftir að hafa svipt sig lífi. Variety, Hollywood Reporter og fleiri miðlar greina frá því að hann hafi fundist látinn á eigin heimili í Los Angeles í gær. Turner varð 59 ára gamall. Ed Winter, talsmaður lögreglu í Los Angels, staðfestir að maðurinn hafi verið úrskurðaður látinn á vettvangi og að allt benti til að hann hafi fallið fyrir eigin hendi. Enn er þó að bíða þar til niðurstaða réttarkrufningar liggur fyrir. Móðir hans, hin 78 ára Tina Turner, hefur ekki tjáð sig opinberlega um fráfall sonar síns. Hún eignaðist Craig Raymond þegar hún var átján ára gömul með saxófónleikaranum Raymond Hill sem nú er látinn. Þegar hún giftist Ike Turner ættleiddi hann drenginn. Ike og Tina eignuðust saman drenginn Ronnie Turner, sem nú er 57 ára. Hjónabandi Ike og Tinu lauk árið 1978, en Ike lést árið 2007. Tina Turner giftist svo tónlistarframleiðandanum Erwin Bach árið 2013.
Andlát Mest lesið „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira